— GESTAPÓ —
Limruþráður.
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 15, 16, 17 ... 25, 26, 27  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ittu 24/9/05 19:15

Fúllyndur fantur er hann
fer um dalinn þverann
hleð ég minn hólk
sem helsærir fólk
helst vil ég skjóta þig berann

Ort um hundingja druslu.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grislingur 29/9/05 10:15

Gömul frétt:

Íslenskir strákar í Basri
áttu í heilmiklu brasi
en á síðustu stundu
þá sprengju þeir fundu
- með öllu - nema sinnepsgasi.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 3/10/05 01:53

Á fyllerí Nornin víst fór
og fékk sér einn lítinn bjór
Duflað við drengi
daðraði lengi
En ekki hún drýgði samt hór.

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Lyra 6/10/05 15:15

Margir á djamminu daðra
við dömur og stundum við aðra.
Þú veist hvað ég meina:
oft hitti ég eina
stúlku, sem er strákur með farða.
‹Klórar sér í höfðinu›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 14/10/05 09:14

"Ég held nú öll rök til þess hníga"
reit Huppa, ein rauðskjöldótt kvíga,
"að pussan á mér
sem prýðileg er
sé mest bara til þess að míga."

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 14/10/05 13:05

Hún Hallfríður húsfrú í Dæli
með Hlyni var í sínu bæli,
hún var glaðlynd og ör,
þar var gressilegt fjör,
svo kom Jónas með jarðskjálftamæli.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Tobbi heimalningur 25/10/05 17:49

Upp þrýsti hann hnjánum að körun
Harður hann beið eftir svörun
en iðrin þau láku
vindi og hláku
Og gaf frú út stormviðvörun

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 25/10/05 23:23

Hann Indriði bóndi á Ósi
var aleinn í rammbygðu fjósi
og kýrrössum þá
hann kynntist og sá
allt lífið í glænýju ljósi.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Lærði-Geöff 27/10/05 11:11

Fannhvítir fróns eru hagar
freðnir og óróir dagar,
en komi hún nú
kvenmeyjan sú
sólin þá súldina lagar.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 27/10/05 18:49

Hún Guðrún sígraða frá Lundi
gall vegna valsins á brundi:
"ef fengi að ráða
fengi þá báða"
fetti sig síðan og stundi

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 28/10/05 11:44

ófjálglega lýsi yfir frati
hve fjári er íslenskurati
umlaði í gær
við ástkæra mær:
"ansans!, mér stendur í gati"

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 8/11/05 17:51

Hér rímar limrurnar Ræpuþór
rosalegur hans máttur stór
Með orðunum allt
'ann drepur blákalt
Frá þrumum hann þiggur sitt vald yfir kór

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 8/11/05 18:24

Þessi limra er nú ísl/ensk... þið skammið mig þá bara ef ég er að gera rangt

There once was a man named Pungur
he wasn´t that verry þungur
He had a kött
that was út í hött
he ate him cause he had a big hungur

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 8/11/05 18:56

Nermal kom hér með snilldar afbrigði af limru. Húrra!

Ég mun einhverntíma fara í smiðju hans og gera eins. Sennilega geri ég það á Írlandi. Það væri viðeigandi.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kveldúlfur 8/11/05 21:58

Limruna Kveldúlfur kann
og kveðlinginn litla hann fann
hann línuna spólar
og spælingu gólar
og spangólar við annann mann.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 8/11/05 22:15

Barmmikil og bústin er Lilja
Fær bólfæra menn til að vilja
Stúlkuna strjúka
og strákinn brúka
Samt vill skömmin ei skilja

‹Vonandi hefur offari skilið rétt!›

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kveldúlfur 9/11/05 19:29

ferleg er kona frá Eyjum
fer hún í rúmið með peyjum
handrúnkar Villa
vel sleikir tylla
af hún víst ber öðrum meyjum.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grislingur 11/11/05 13:24

Þegar Jeltsín kallaði á kútinn
Í kinnum svo rauður og þrútinn
Þá fékk hann að heyra
Að hann fengi ekki meira
Í pósti frá félaga Pútín.

        1, 2, 3 ... 15, 16, 17 ... 25, 26, 27  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: