Kekki ekki kunna má
þekki hrekki stóra
sekki flekki eina þrjá
merki verki fjóra
Fjóra sleða festi ég nú
fast við 18 í teymi
hundingi minn hypja þú
hefnd er hér á sveimi
Glíma var síðasta orðið í réttri keðju sýnist mér.
Glími ég við galdramál
svo gæfan ekki út úr keyri
Djöfull skal ég drag'á tál
drenginn einn frá Akureyri.
Akureyri andskotans
aumingja bæli
í Taasilaq er tekinn dans
tómt þar eitt hæli
Hælismatur held ég sé
hálfvitinn at tarna,
eða heng'jann upp í hæðsta tré
í haugamat og skarna.
Skarna vil í skell´enni
skökul henni veita.
Smjúga inn og smell´enni
smyrja píku feita.
feita vil ég fríika með
flón er ég að reyna
Margt hér hefur mikið skeð
man ég stúlku seina
Seinast þegar fékk ég far,
með flugfélagsins raunum.
Fyrir greiðann, mér greiða bar,
góðum vikulaunum.
Launin ástar sorg og sút
svartnætti og bömmer.
Vild'ég komin væri út
það vær'enn sidste sømmer.
Sömmer dette danska orð
dásamlega bjagað.
Þetta ætti að bera á borð,
brytjað, hrært og sagað.
Sagað hef ég sundur fót
Og saumað aftur saman
Andlit missti inn að rót
Óggislegur í framan
Sagan milli bæja sveif
sönn var bar'á köflum
Sagði hún frá Kára kveif
og kindum útí sköflum.
(of sein)
Faman í mér fast er bros
finnst mér lífið æði
Komið er á legið los
ligg í poll af sæði.
Oj! þetta kom alveg ósjálfrátt! Glottir eins og fífl
Sæði upp í streymir mót
syndir milli barma
Hraðar ef auka hefði fót
hlaupið um í þarma
Þarma garg er gagnlegt mjög
gleður mannsins hjarta,
hljómar likt og spil af sög
um sumar daga bjarta.
Síðustu tvær vísur, þótt um margt hafi verið ágætar, voru eigi nógu vel úr garði gjörðar hvað stuðlasetningu varðar. Því er bezt að taka upp þráðinn frá Norninni -
Framan í mér fast er bros
finnst mér lífið æði
Komið er á legið los
ligg í poll af sæði.
- & við höldum áfram, á svipuðum nótum:
Sæði veitir sæluna,
svalar þyrstum sprundum,
gefi þær munngæluna
á gleðiríkum stundum.
Stundum eru stormasöm
stræti huga manna.
Út þeir ganga' á ystu þröm
eins og dæmin sanna.
Sannanlega segi hér
að sælustundir mínar
upplifi í þér með mér
og muna-óskir þínar
Þínar allar þarfir fá
þangað ekki að leita
gjarnan vill hann Gosi fá
gleði meðal geita