Hefur þessi Einar sem var í Kastljósinu áðan og er kvikmyndagerðarmaður, gert kvikmynd fyrr en nú sem komið hefur fyrir almenningssjónir?
Ertu að tala um það já. Starir forviða á Harald
A disturbance in the Force!
Hvíti víkingurinn hreyfði við mér. Og reyndar Opinberun Hannes líka. Ég skipti um rás á sjónvarpinu. Það er hreyfing.
Ef eigi er sofið framan við sjónvarpið fylgir sjónvarpsáhorfi hreyfing á augasteinum, einkum ef setið er nálægt sjónvarpinu og/eða ef sjónvarpstækið er stórt.
Ég hef alltaf talið að íslensk kvikmyndagerð væri bara lélegt yfirskyn yfir framleiðslu ljósblárra kvikmynda fyrir asíumarkað.
Ahem...voru ekki Kínverjar að klippa ástarsenurnar úr einhverri íslenskri mynd? Hinsvegar höfum við flutt kynörvandi mixtúrur til Japan, s.s. hrogn og hrossaspik.