Gættu krummo góði minn
að gnýstuðlunum þínum.
þér er hlíft í þetta sinn
þökk sé pillum mínum.
Veit ég hvorki stund né stað
sterk var þessi blanda
Veit ég hvorki stund né stað
sterk var þessi blanda.
Það var djöfuls della að
drekka þennann fjanda.
Sólin upp í austri rís
alla lífs míns daga.
Sólin upp í austri rís
alla lífs míns daga.
Máske hún á morgun kýs
misgjörð þessa laga
Voða er hún Sunna sæt
sólargeisli lífs míns
Voða er hún Sunna sæt
sólargeisli lífs míns
Eldgömul og alls óæt
ófrínileg til tríns.
Þunga eina þambandi
þekkti ég í Narsaq
Þunga eina þambandi
þekkti ég í Narsaq.
Senn ég var í sambandi
suður fyrir rassaq.
Grænlendinga gredda mjög
gefur vel í aðra hönd.
Grænlendinga gredda mjög
gefur vel í aðra hönd.
sumra eru regin rög
ríða ösnum alla um strönd.
Mér er ekki samt um sel
syndir drýgði margar
Mér er ekki samt um sel
syndir drýgði margar
Ekki gott það ég nú tel
en eitthvað það þó fargar
Hausverkur mig heltekur
heyri líka skrítið suð
Hausverkur mig heltekur
heyri líka skrítið suð
Viðinn heilinn vel skekur,
vont er timburmannapuð
Spiritus og sprautunál
spræt og pepsí-cola
Spiritus og sprautunál
spræt og pepsí-cola
svolgra ég í sérhvert mál
svona fram til jóla
Oft er fagurt tungutak
tál og haugalygi
Oft er fagurt tungutak
tál og haugalygi.
Skelli ég mér bert á bak
á blindafylleríi.
Fjandakornið fullur víst
farinn út að djamma.
Fjandakornið fullur víst
farinn út að djamma.
fylli bílinn frammúr skýst
flæðir vín um kjamma.
Umferðina óttast mjög
er því ráð að drekka
Umferðina óttast mjög
er því ráð að drekka.
Raular nokkur ljúflingslög
leggst í rúm með ekka.
Kannabis og kókalauf,
kennir margra grasa.
Kannabis og kókalauf,
kennir margra grasa.
áfram tyggjum, ekkert gauf
út við skulum rasa.
Efedrín og LSD
etum nú af krafti
Efedrín og LSD
etum nú af krafti.
Látum eins og ekkert sé
öll og höldum kjafti.
Hjálpa þú mér góður guð,
gef mér fleiri konur.
Hjálpa þú mér góður guð,
gef mér fleiri konur.
uppreist hold og eilíft stuð
eins og fékk þinn sonur.
Annars fer ég fjandans til
fæ þar nóg að gera
Of seinn
Hjálpa þú mér góður guð,
gef mér fleiri konur.
Ef til vill þá eftir puð
Einn mér fæðist sonur.
Annars fer ég fjandans til
fæ þar nóg að gera
Drekka og dansa, líka vil
dömur ljúfar skvera.
Í helvíti er heitt og gott
hresst þar mun að vera
Annars fer ég fjandans til
fæ þar nóg að gera
helvíti er hér um bil,
hérna oft að vera.
Ekki sýnist öllum gott,
ævina að þreyja
Uss suss suss, alltof sein. Nornin á leik.