Á mbl.is er nú loksins komin sú stórfrétt að nýjasta köntrýplatan á Íslandi sé komin út. Afar markverð frétt verð ég að segja.
Ég trúði ekki orði af þessari frétt lygamiðlanna fyrr en Númi Fannsker tók af öll tvímæli á forsíðu Baggalúts. Morgunblaðið hefur því álpast á sannleikann í þetta sinn.
Ég vil nota tækifærið og óska Baggalútum innilega til hamingju með útgáfu hljómdisksins. Þjóðin stendur í þakkarskuld við þessa dáðadrengi sem hafa stigið nauðsynlegt og þarft skref í tónlistarsögu lýðveldisins.
Þeir lengi lifi! Húrra, húrra, húrra, húrra!
Ef einhvern tíma var ástæða til að skála þá er það núna!
Færir öllum brennivín í mjólkurglasi
Nú teljum vjer mjög við hæfi að vitna til fleygra orða:
Loksins, loksins
Og í tilefni þessa stórviðburðar höfum vjer tekið þá óvenjulegu og nánast einstæðu ákvörðun að setja sviga utan um nöfn ritstjórnarmeðlima í listunum yfir óvini ríkisins en ritstjórnin lenti á þeim listum fyrir að verða þess valdandi að umræddir óvinir náðu Baggalútíu á sitt vald um tíma fyrr í sumar. xT SKÁL ! xT Sýpur á fagurbláum drykk eftir að hafa látið efnagreina hann
Þeir voru glæsilegir ritstjórnarkvekenden okkar 2. Okkur öllum sómi sýndur með þeirra fáguðu framkomu.
Lifi sannleikurinn!
Þeir voru glæsilegir ritstjórnarkvekenden okkar 2. Okkur öllum sómi sýndur með þeirra fáguðu framkomu.
Lifi sannleikurinn!
Hvaða aðdróttanir eru þetta eiginlega? Þetta voru þriðja flokks leikarar sem fjellu í inntökuprófi í leiklistarskóla íslands 7 ár í röð sem voru fengnir til að koma þarna fram. Þjer vitið ágætlega herra hudnigni, að ritstjórn vor lætur aldrei uppi hverjir þeir raunverulega eru.
Hvað sem öðru líður er platan bráðgóð, fór og fékk mér mitt fyrsta eintak í gær. Lag eins og "Pabbi þarf að vinna í nótt" er án efa orðið sígilt nú þegar og önnur koma sterk inn. Flott stykki yst sem innst, óska stjórninni (rit-) til lukku með barnið.
Þeir voru glæsilegir ritstjórnarkvekenden okkar 2. Okkur öllum sómi sýndur með þeirra fáguðu framkomu.
Lifi sannleikurinn!
Hvaða aðdróttanir eru þetta eiginlega? Þetta voru þriðja flokks leikarar sem fjellu í inntökuprófi í leiklistarskóla íslands 7 ár í röð sem voru fengnir til að koma þarna fram. Þjer vitið ágætlega herra hudnigni, að ritstjórn vor lætur aldrei uppi hverjir þeir raunverulega eru.
Ohh. Jeg var víst djúpt í glasi þegar þetta var hripað. Biðst innilega afsökunar á asnaskapnum.