Ég skírði ekki son minn, enda er það hans að velja hvort hann vill láta skía sig eður ei.
Mikið finnst mér þetta gott hjá þér Sverfill.
Mér finnst að allir ættu að taka þig sér til fyrirmyndar. Við eigum ekki að þröngva trú upp á saklaus börn. Þau eiga að velja sjálf þegar þau hafa vit til.
Amen!
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Nei heyrðu, þetta var ekki fyndið.
Klórar sér í höfðinu
Ekki fyndið
Glottir eins og fífl
Ekki fyndið! HA!
Glottið hverfur, reiðin birtist á andliti Svikara og hann strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Læðist inn aftur
Ég hata svona óakveðni...
Ég vil nota tækifærið og rifja eftirfarandi sögu upp:
Einhverntíma á áttunda áratugnum opnaði Ólafur Gaukur Þórhallsson eigin Gítarskóla og við það tækifæri birtust sjónvarpsauglýsingar þar sem meistarinn segir með sinni sefandi, hásu rödd: "Allir geta lært á gítar í Gítarskóla Ólafs Gauks". Sagan segir að viðbrögðin við hafi orðið þvílíkt jákvæð, að meistarinn fann sig knúinn til að breyta auglýsingunni. Næsta kvöld í auglýsingatíma heyrðist hann segja: "Næstum allir geta lært á gítar í Gítarskóla Ólafs Gauks"...
Þetta var skemmtileg saga. Auglýsingabransinn er fullur af svona sögum. Ein saga sem ég heyrði er svona. Þegar Ingvar Helgason bifreiðaumboðsmaður lést hafði markaðsdeildin verið búin að undirbúa mikla söluherferð og ákvað að vera með einhvern glaðning í skottinu á öllum bílum sem seldir voru í ákveðinn tíma. Það þótti mönnum helst tíl óheppilegt á einhverri útvarpsstöðinni þegar átti að setja herferðina af stað að Ingvar Helgason var jarðaður sama dag. Það sem hefði kórónað allt saman væri ef upphaflegur texti auglýsingarinnar hefði heyrst í útvarpinu þann dag. Textinn var svona: Hvað ertu með í skottinu? Ingvar Helgason. Auglýsingunni var snarlega fleygt og beðið í tvo daga með að hefja herferðina.
sparkar í Frella
Stelur lúðrinum af Frella og setur hann í bílaþjöppu
Flautar með þokulúðrum í bæði eyrun á Ferrari.
Vissuð þið að það er til afbrigði af spilinu Langavitleysa sem heitir Langa-langavitleysa?
á ekki að slá upp veislu til að fagna með Offara Rogast með bús og lætur á barinn