Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer óskum Júlíusi prófeta hjer með formlega til hamingju með rafmælið Færir rafmælisbarninu kóbalt og plútóníum.
Aha! Þiggur með þökkum Hef raunar bara litið hér inn einstaka sinnum síðan sumarlokunum var aflétt. Það var raunar bara skemmtileg tilviljun að það skyldi einmitt vera rafmælisdagur minn í dag. Ég býð í tilefni dagsins til veislu á Hótel Valhöll, Þingvöllum. Drykkir á tilboði.
Æ, missti ég af rafmæli Júlíusar Óféta... ég meina Prófeta? Æ, ég mæti bara næst. Til hamingju annars...
Óska mér svo til hamingju með rafmælið gerpin ykkar.
Stappar í gegnum gólfið af frekju
Ég óska Galdrameistaranum innilega til hamingju með eins árs rafmælið. Svona litli minn, þetta er allt að koma hjá þér klappar á kollinn á Galdra sem er hálfur niður úr gólfinu
Brýst ógurlega um til að reyna að losa sig
Takk Ibbi minn.
Óska mér svo til hamingju með rafmælið gerpin ykkar.
Stappar í gegnum gólfið af frekju
Já til hamingju meistari!
Hjartanlega til hamingju með rafmælið elsku Galdri! xT
Til hamingju Galdri....
Galdri minn góður, til hamingju með rafmælið.
Þakka ykkur elskurnar mínar.
Brestur í óstöðvandi grát
Já, til hamingju. Ánægjulegt að þú skulir vera hér til að taka á móti þessum heillaóskum.
Ég var nú búin að óska þér til hamingju en skal gera það hérna líka bara.
Rogast inn með risa rjómaköku. Inní kökunni bíður Jói Fel eftir merki
Rabbabari!
Jói hoppar út og skvettir rjóma á nærstadda
Ég vil óska Diotallevi sérstaklega til hamingju með rafmælið. Njóttu vel góurinn, þú mættir láta sjá þig oftar með þinn kjarnyrta stíl.
Gefur Diotallevi gylltan skeggnyrti og Flórens
Grimmis hárprúði óska ég líka til hamingju. Megi hár þitt lengi dafna.
Gefur Grimmis risastórt ker af kóbaltbláu brillíantíni
Hjartanlega til hamingju með rafmælið Isak minn! Þú ert svo sannarlega búinn að standa þig vel síðasta hálfa árið, og ég veit að þú átt bara eftir að vera betri næstu 6 mánuðina.
Gefur Isak stórt knús, köku og flugmiða til Bali fyrir tvo Skemmtið ykkur vel!