rölta ver ég rekkju til
reyna ögn að sofa
En mér er illt í minni il
og með náladofa.
Þegið get því svefninn ei
þunnur verð í tíma
Voða boðar Vódafón
var það og.
Leirinn hnoðar, ljót er sjón,
í ljóðatrog.
Fallvölt gæfan frá mér hvarf.
Farnar allar heillastjörnur.
Fallvölt gæfan frá mér hvarf.
Farnar allar heillastjörnur.
Gráta fáir gamlan skarf.
Gráta kannski ein, tvær Örnur.
(Fann ekkert annað sem rímaði við stjörnur en þessar konur.)
Núna er ég næstum dauður.
Nærri farinn er til himna.
úps of seinn...hérna botnaði ég Voffa...
Fallvölt gæfan frá mér hvarf.
Farnar allar heillastjörnur
Í bolla mínum baunasvarf
bilað hafa allar kvörnur
Svo botnaði ég Skammkel
Núna er ég næstum dauður.
Nærri farinn er til himna.
Ekki láta einsog sauður
ekki skortir vilja limna
sleppur þetta rím ekki?
Ljóst er því að lukkan féll
langt út fyrir heilbrigð mörk
úff...erfitt þegar maður er að flýta sér :)
Þegið [svefninn því get] ei
þunnur verð í tíma
veldur þessu Lóre-Lei
með leiðslutón í síma.
[afsakið árásina á fyrripartinn, vildi bara láta standa rétt í stuðlum]
Voða boðar Vódafón
var það og.
Maður lærir svo lengi sem lifir
Ljóst er því að lukkan féll
langt út fyrir heilbrigð mörk
Mun hinn káti skammsins kell
klára að flysja börk.
Vinnur verksmiðjunni í
verkar appelsínur
Vinnur verksmiðjunni í
verkar appelsínur
karlinn betur kunni því
að klæða gínur
að lemja börn með límbandi
er ljótur siður
að lemja börn með límbandi
er ljótur siður
Starfa nú hjá Sambandi
sem mér þykir miður
Kennsla hefur kannski átt
við klunna eins og mig
að lemja börn með límbandi
er ljótur siður
En það er svon´á Íslandi
Er því miður
Stjórnsýslan svo undraverð
sem náttúru undur
að lemja börn með límbandi
er ljótur siður
Starfa nú hjá Sambandi
sem mér þykir miður
Kennsla hefur kannski átt
við klunna eins og mig
Æ,afsakið. Fór í símann....
Kennsla hefur kannski átt
við klunna eins og mig
Ekki hef ég þennan hátt
er stunda ég bjargsig
Voða veikir botnar hér
vaða uppi um allt
Voða [botnar veikir] hér
vaða uppi um allt
Partar fyrri finnst þó mér
fegra vísnasalt
tók mér það bessaleyfi að leiðrétta fyrripartinn, vona að menn verði ekki súrir...hérna eru leiðbeiningar meðal annars um stuðlasetningar http://www.heimskringla.net/bragur/Default.asp
notum lítinn leirburð hér
lesum fræði braga
Notum lítinn leirburð hér
lesum fræði braga.
Burtu skítinn skeinum vér
sköpum þræð'af aga.
Yrkjum saman allir hér
eftir reglum braga.
Yrkjum saman allir hér
eftir reglum braga.
Þrautin reynist þyngri mér
þarf minn stíl að laga.
Þótt ég lítið þekki til
þeirra góðu reglna
Hvarmarnir fögru og fríðu
fyllast nú söltum tárum.
Þó bauð , henni sína blíðu,
Bjarni fyrir nokkrum árum
-------------------------------------
Glaður heima bíður hann,
einn hjá kerlu sinni.
[Heyrðu krummo minn góður, það er ekki fallega gert að slíta þráðinn svona.BP]
Glaður heima bíður hann,
einn hjá kerlu sinni.
fögnuðinn hann loksins fann,
frítt þótt kerlan ynni.
Börnin trítla bílinn í,
breiða brosið skín.
Börnin trítla bílinn í,
breiða brosið skín.
Steingrímur Njáls er aftur í
með eftirlætin sín.
Fer hún Stella framboð í
til forseta í vor?
Fer hún Stella framboð í
til forseta í vor?
Orlofi var hún aldrei í
Ekki fær hún bor
Bubbi bramlar gítar á
Breytist hann í dómara nú?
Bubbi bramlar gítar á
Breytist hann í dómara nú?
Pælari farðu Plebbin frá,
pungar út fyrriparti snú (num)
Fátt er fyrripart´í dag,
fullir eru verjar