gargar djúpri röddu
Förum í Karlmennskukeppni!
tekur upp ákavítisflösku og brýtur hana á hausnum á sérsteinrotast
Pant ver´ann!!!
Sparkar í undirmálsmenn, furðuverur af ýmsum toga og alla þá listamenn sem hann telur sér æðri
KVEIKJUM Í HVERFISGÖTUNNI OG GRILLUM NAUT!
Mér er spurn; Hvað varð um hinar fornu hetjur Baggalútíu. Á ég þá við um t.a.m. Mikinn Hákon, Nykur, Sverfil Bergmann, Skabba Skrumara, Dr. Zoidberg, Dr. Gottfriedsen, Barbie, Konstantín, Frelsishetjuna, Herbjörn Hafralón, Blástakk, Hilmar Harðjaxl, Júlíu, að ég tali nú ekki um plebbin.
Eitthvað af þessu liði gæti hafa sést hérna nýlega, en hvar er restin?
Það hvarflar að oss að þar eð nýlega var stríð þar sem óvinir ríkisins náðu Baggalútíu tímabundið á sitt valdi hafi einhverjir ofangreindra gesta enn eigi áttað sig á að umræddu stríði er lokið með sigri og sjeu því enn í felum, líkt og nokkur fjöldi Japana var á eyjum við Kyrrahaf árum og jafnvel áratugum eftir að seinni heimsstyrjöldinni lauk.
Vonum vjer hins vegar að sem flestir umræddra gesta verði fljótari en umræddir Japanir að átta sig á að stríðinu er lokið.
Hæstvirtur keisari Baggalútíu virðist þó sem betur fer hafa áttað sig á þessu.
Ég er enn á lífi og við bærilega heilsu þótt komur mínar hingað hafi verið fremur stopular í sumar. Við verðum að sjá til hvort ekki rætist úr með haustinu.
Ég get þó ekki annað en glaðst yfir því að enn skuli margir af gömlu gestunum muna eftir biskupsræflinum.
Má maður eki fara til útlanda án þess að allir missi sig í einhverjum væmnum minningarþráðum? Í guðanna bænum, þið eruð karlmenn! Konur sakna! Urrabíta! Öskrar hátt og lengi, en missir loks tóninn í heiftarlegu mútukasti og hleypur út af sviðinu
Aaaarrrghhh Harðjaxlinn mættur! Ljómar upp
Komdu hérna lurkurinn þinn!
Grípur Hilmar, heldur höfði hans undir handarkrikanum og skrúbbar höfuðleðrið uns hárið fer að rjúka
Hjartanlegur heiður að hitta Herbjörn Hafralóns og Hilmar Harðjaxl, heiðursmenn heimtir úr helju.
Er búið að skrifa sögu Baggalútíu? Eru Bagglýtinga sögur til?
Tjah, Skabbi Skrumari er Ari Fróði okkar Bagglýtinga. Hann hefur skráð söguna og gramsað í fornum skjölum.
Hins vegar hefur enginn skrifað Bagglýtingasögur eða þætti, þ.e. í anda Íslendingasagna og þátta.
Enda eru íslendingasögur hundleiðinlegar. Ég segi að við skrifum þetta í formi kvikmyndahandrits, þá getum við notað sviðið án þess að það líti kjánalega út.
Hefst ekki Bagglýtingabók á orðunum um landnámsmanninn djarfa: Númi fann sker.
Ég segi að þetta byrji frekar á einhverskonar Adam og Evu sögu. Enter er Adam og Númi er Eva. Svo er Guð bara... bauv.
Eða kannski. " Í upphafi var baggi og bagginn var lútur... osfrv.
Starir þegjandi út í loftið
Einnig má hugsa sjer að hafa byrjun Bagglýtingabókar svona Ljómar upp:
Í upphafi skapaði Hinn mikli Baggi (*) bagga og lút. Lúturinn var þá auður og tómur, og tómleiki grúfði yfir öllu og andi Bagga sveif yfir öllu. Baggi sagði: Verði þræðir (**)! Og það urðu þræðir. Baggi sá, að þræðirnir voru góðir, og Baggi greindi þræðina frá hvorum öðrum eftir efni þeirra. Og Guð kallaði þræðina Gestapó, en myrkrið kallaði hann miðnæturfrost.
(*) Sjá stefnuskrá Hreintrúarflokksins
(**) Skyldir sk. strengjum í heimsfræði
Rit þetta mæti e.t.v. nefna Gestamentið Starir þegjandi út í loftið.
Vlad minn kæri.
Hefur þú sjeð harpún minn? Klórar sér í höfðinu