Væni, þú þarft þér að kynna
þrýstihnappa og þessháttar kurl
því gæsalappir getur að finna
í grennd við 'Svið' og 'URL'.
Var í sömu villu hér
vinur erum slappir
Ansi fagur fengur er
að finna gæsalappir
Gæsalappir glugga undir
gestur þú munt finna
ef þú leita og lesa mundir
loksins yrði nöldur minna
[ Ekki illa meint ]
Gumar nú allir öðlumst mennt
okkur fram úr því klórum
sem Jónas og Davíð páruðu pent
með pennastrikunum fjórum.
Mælt í orðastað Enters:
Furðu lostinn, forviða,
feiminn ei og hamslaus,
talíbanann til siða,
tómt sá mælir víst raus.