Innilega til hamingju með afmælið, elsku feministi.
smellir kossi á hvora kinn
Fór þetta illa? Ekki hefur sést til Sundlaugs síðan hann dirfðist.
En annars til hamingju feministi.
Gefur feminista eistun af geit fyrir ritualinn
Átti ég rafmæli ?
Ég er svo aldeilis upp með mér eftir að hafa lesið allar kveðjurnar.
Þurrkar gleðitár
Megi þið þakkir hafa og ég lofa að bjóða ykkur í rafmælisveisluna mína á næsta ári. (Ef ég man eftir að halda hana.)
Vil ég svo óska rafmælisbörnum dagsins til hamingju á þessum merka degi í lífi þeirra.
-
Ég vil óska hinum yndislega Feminista til hamingju með rafmælið!
Skál fyrir þér ungfrú og takk fyrir síðast! Ljómar upp
Í tilefni rafmælis míns er ég föl í dag.
Nei sko, Ned Kelly. Ég hélt að þú væri dauð. Til hamingju með að hafa tórt.
Til hamingju með rafmælið Feministi! Á að fá sér Dominos í tilefni dagsins?
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer óskum feminista hjer með formlega til hamingju með rafmælið Flettir upp á feminista í listunum yfir stjórnarandstæðinga/óvini ríkisins og setur sviga utan um 'feministi' í öllum 17 listunum í tilefni dagsins
Þakka hlýlegar kveðjur á 2 ára rafmæli mínu, rafmælisveisla verður haldin á næturgeltinum. lummur og kakó í boði.
Já, til hamingju öll. Sérlega feministi, þar sem hún er sú eina sem ég hefi hitt í raunheimum.
Ég hlýt þann heiður að vera fyrstur til að óska forseta vorum til hamingju með rafmælið! TIL HAMINGJU VLAD!!! skenkir fagurbláum drykk í tvö glös og afhendir Vlad annað þeirra. Drekkur svo sjálfur úr hinu
Vjer viljum óska forseta vorum Vladimir Fuckov hjartanlega til hamingju með rafmælið. Mega hans fjandvinir þjást um ókomna tíð.
Skál! xT
Innilega til hamingju með rafmælið Vladimir Fuckov. Megirðu njóta dagsins til hins ýtrasta og brenni óvinir þínir í helvíti um aldir alda. Skál!xT
Til hamingju Vladimir! xT
Heill forseta vorum og fósturjörð. Punktur. Húrra, húrra, húrra, húrra!
Þakka ykkur sem nenntuð að senda mér rafmæliskveðjur, ég hefði að sjálfsögðu frekar viljað fá pakka en svona er lífið. Já, og til hamingju með daginn Vald.
Kæri Vladimir, hér er naut úr kóbalti. Óle!