Fer í Ríkið, fæ mér drykk.
Fullur drepst og æli.
Hundar Ríkis segja "hikk"
vínið held ég að seppa tæli
Fer í Ríkið, fæ mér drikk.
Fullur drepst og æli.
Hunds nú líkið harla sick,
husla skal í bæli.
Fer í Ríkið, fæ mér drykk.
Fullur drepst og æli.
Hverfur reisn í einum rykk
í rónans sóðabæli
Fer í Ríkið, fæ mér drykk.
Fullur drepst og æli.
Er ég vakna fæ mér Vick
Voffa botna mæli.
Fer í Ríkið, fæ mér drykk.
Fullur drepst og æli.
Skjögra, slefa og röfla,klikk,
kúldrast heim í bæli.
Fer í Ríkið, fæ mér drykk.
Fullur drepst og æli.
Timbraður ég tek í gikk,
með trega höglum dæli.
Fer í Ríkið, fæ mér drykk.
Fullur drepst og æli.
Kella verður alveg klikk,
kastar mér úr bæli.
Fer í Ríkið, fæ mér drykk.
Fullur drepst og æli.
En lítinn fæ ég lengur kikk
leiður verð og skæli
Fer í Ríkið, fæ mér drykk.
Fullur drepst og æli.
vond er líðan soldið sikk
sukka endá hæli
Fer í Ríkið, fæ mér drykk.
Fullur drepst og æli.
hafðu vímað heljarkikk
hættu öllu væli
etanólsins eðla trikk
á þig peistar smæli
Mér sýnist geta orðið úr þessu hin fallegasta smásaga:
Fer í Ríkið, fæ mér drykk.
fullur hætti væli.
Etanólsins eðla trikk
á mig peistar smæli.
Þótt mér lostinn geri grikk
og getu mína bæli,
ég hef úr vímu heljarkikk,
happy drepst – og æli.
Fer í Ríkið, fæ mér drykk.
Fullur drepst og æli.
Danir drekka líka þann drykk,
drykkurinn góði og sæli.
Fara í ríkið fá sér bjór
og feikninn öll af víni,
svo klingja, timburmenn í kór
þá karlar líkjast svíni,
Svona gekk það enn um sinn
saman drukku,um jólin
En kvenær hækkar kæri minn,
kærleiks himna sólinn?
FER Í RÍKIÐ, FÆ MÉR DRYKK
FULLUR DREPST OG ÆLI.
ÞVILÍKT FÁR OG ÞVÍLÍKT KIKKK
ÞEIR BÁRU ANN HEIM MEÐ STÆLI.