Skabbi er á skáldavef
skýjaborgarstjóri
Smali hefur smurt sitt nef
smekkfullt uppúr flóri
Smali karlinn klórar sér
kindur horfnar eru
Smali karlinn klórar sér
kindur horfnar eru
Eflaust ímyndar þú þér
eitthvað í þá veru.
Fljótt er febrúar liðinn
Floginn allur tími
FLJÓTT ER FEBRÚAR LIÐINN
FLOGINN ALLUR TÍMI,
Í MARS ÉG VERÐA MUN IÐTNN
VIÐ MARGT ÉG SJÁLFSAGT GLÍMI.
------------------------------------------
Í APRÍL MUN AFTUR VORA,
ALLIR GLEÐJAST MUNU.
FLJÓTTER FEBRÚAR LIÐINN
FLOGINN ALLUR TÍMI
Í MARS ÉG VERÐA MUN IÐINN
VIÐ MARGT ÞÁ VERÐ ÉG AÐ GLÍMA.
---------------------------------------------
Í APRÍL ALLT MUN DAFNA
AFTUR VORIÐ KJEMUR,
---------------------------------------------
Í APRÍL ALLT MUN DAFNA
AFTUR VORIÐ KJEMUR,
Ég forða fitu safna
fagurt er það fremur
Út mig belgi móðan,
magur er ei lengur,
Út mig belgi móðan,
magur er ei lengur,
tæpast þeir töldu mig góðan,
en tágrannur var ég drengur.
Kominn með eilitla ýstru,
örlítið þykkri höku.
Kominn með eilitla ýstru,
örlítið þykkri höku.
Ég nánast á stend blístru
en fæ mér samt smá köku.
Reyniber og rjómi vænn,
renna vel í maga.
Reyniber og rjómi vænn,
renna vel í maga.
reyktu þar til þú ert grænn
það mun útlit laga
sé reyndar að þú ert orðinn grænn, gott hjá þér - allt er vænt sem vel er grænt
gott er að éta góða steik
glaður þetta votta
Gott er að éta góða steik,
glaður þetta votta.
Á eftir fá sér feitan reyk
og fagra skvísu totta.
Úr offitu er læknir látinn,
ljúfmennið hann Atkins.
Úr offitu er læknir látinn,
ljúfmennið hann Atkins.
Enn þá vinur er nú grátinn
allt sem þáði matkyns
Lundabagga, blóðmör svið
brædda smjörið rjómann
Lundabagga, blóðmör svið
brædda smjörið, rjómann
Kransæðarnar klessist við
kennt er við ósómann.
Má ég frekar biðja um brauð
og býsnin öll af vatni.
Má ég frekar biðja um brauð
og býsnin öll af vatni.
Það mun bjarga búk úr nauð
í belgnum þó að sjatni
Helst af öllu Óðni líkir
ættum nú að vera
(Óðni var rauðvín bæði matur og drykkur)
Helst af öllu Óðni líkir
ættum nú að vera
Hornin kneyfa karlar slíkir
kunna vel að gera.
Í Valhöll eftir vaska æfi
vil ég dvelja á barnum.
Í Valhöll eftir vaska æfi
vil ég dvelja á barnum.
Mig að hornamyði gæfi
minna þenkti hjarn um
Þarna drekka dægrin löng
drengir góðir rakir
Þarna drekka dægrin löng
drengir góðir rakir
Iðja sú er æði ströng
engir gerist slakir
Í Valhöll mun ég veislur sitja
í vinahópi næstu aldir.
Í Valhöll mun ég veislur sitja
í vinahópi næstu aldir.
Drykkju sífellt vaskir vitja
verða aldrei dagar taldir
enginn gerist Goodtemplar
Grímur Thomsen lofaði
sbr.
...
Egill gamli og Grettir
gjörast brúnaljettir,
þegar býðst þeim bjór;
feitu af fleski mettir
fattir tæma'og rjettir
hornin stikilstór.
Saman sitja bekki
siðlátir, þó drekki,
ávalt einherjar;
þó að þjett og lengi
þambað hafi, engi
gjörist Goodtemplar. [drykkjuvísa,Fjallkonan 1892, G.T.]
Enginn gerist Goodtemplar
Grímur Thomsen lofaði
Unaðslegt þó exemplar
ég átti við í klofbaði.
Skömm er ævin, allir sjá,
ekkert vit í stúkulífi.
Skömm er ævin, allir sjá,
ekkert vit í stúkulífi.
Nú ég verð að fara frá
frá nú skjánum búkinn hífi
rölta ver ég rekkju til
reyna ögn að sofa