Æi, andskotinn, ég hef ekkert að gera við þennan rétt.
Borðar réttinn
Þá er að varpa fram einni gátu fyrst rétturinn er laus.
Þetta er frægur leikari, látinn. Alltof létt.
Opnar munninn og þykist öskra eins og geðsjúklingur. Hoppar um, sparkar og kýlir út í loftið. Snarstoppar, réttir út höndina og gefur bendingu til ýmyndaðs andstæðings um að koma nær...
Gefur ég sjálfur merki um að hann sé á réttri leið
Bruce Lee?
Brúsinn var það Stekkur hæð sína
Klárlega ég. Þá meina ég ég, ekki Ég.
Vér héldum að Goggurinn væri vanur að tala um sjálfan sig í þriðju persónu.
Nei, er það ekki plebbinn? Eða jafnvel feministinn... Starir þegjandi út í loftið
Hvað er Norna annars að spá? pikkar í Nornu
Hún spáir í spil
Nornin var nú aðallega að spá í einhverja sæta stráka... en fyrst að Gestapó lokar á þessum nýbyrjaða sólarhring, eigum við þá ekki að láta þetta bíða.
Hugarheilsan er ekki upp á marga fiska eftir kóbaltbláa drykkinn sem við dreyptum á í gær.
Ég finn eitthvað sniðugt fyrir 1. ágúst... ef heilasellurnar fjölga sér eitthvað að ráði.
Hefur eitthvað komið í huga þinn Norn?
greinilega enginn með hgann við þennan leik.
Þá tek ég mér það leyfi að ræsa nýja umferð án réttar.
Þetta er íþrótt, voða létt örugglega.
Stendur upp og gengur fram á gólfið. Beygjir sig fram og virðist taka einhvern tiltölulega ómeðfærilegan hlut í hendurnar. Veltir þessum hlut í höndum sér að því er virðist til að ná betra taki á honum.
Lætur nú hlutinn hvíla í annarri hendi og heldur í hann með hinni. Lítur einbeittur í fjarskann, tekur skref með hlutinn fyrir framan sig, annað skref og sveiflar arminum aðeins aftur fyrir sig, þriðja skref og lætur arminn sveiflast rétt hjá hnésbótinni, snarstansar og horfir á eftir hlutnum fjarlægjast.
Getiði nú. Stekkur hæð sína
Mér dettur annaðhvort í hug botsja (hvernig sem það er skrifað venjulega) eða keilu, sem ég tel líklegra út af því að botsjaboltar eru ekki sérlega stórir og ómeðfærilegir.
Að sjálfsögðu, bull er þetta í mér. Ég hlýt að hafa fengið mér aðeins of mikið af ákavítinu með Hakuchi og Skabba áðan...
Ég styð kenningu yðar með keilukúlukastið (kkk).
Of mikið Ákavíti? Ég hélt að það orðalag væri ekki til hér.
otar Ákavíti að Spesa
Mér dettur annaðhvort í hug botsja (hvernig sem það er skrifað venjulega) eða keilu, sem ég tel líklegra út af því að botsjaboltar eru ekki sérlega stórir og ómeðfærilegir.
Keilukúlukastskenningar eru sannreyndar hér með. Ég Sjálfur á leik.
Of mikið Ákavíti? Ég hélt að það orðalag væri ekki til hér.
otar Ákavíti að Spesa
Rétt er það, aldrei of mikið. Bara of mikið til að geta hugsað skýrt. En það kemur ekki að sök! Tekur við ákavítinu og teygar