Hafið þið í hyggju að fylgja plötunni eftir með sveitaböllum?
Aldrei að vita, ef við finnum einhverja bjána til að spila þetta.
Prófið Stuðmenn. Þeir kunna á hljóðfæri en hafa ekki spilað góða tónlist síðan...tja...aldrei?
Hví flytjið þið ekki inn banjóleikara?
En ef þið breytið útsetningunum svo þær þoli sítarsóló, veit ég um einn Pakistana sem myndi gera þetta fyrir nokkra hundraðkalla.
Það er aldrei að vita nema Ilya Toshinski leggi leið sína til landsins svo við getum haldið útgáfutónleika...
Jæja, engin rétt svör so far...
Hljómsveitin átti lag í kvikmyndinni Borg Englanna
Getið þið ekki bara reddað Bering Strait allri hingað? (Hver segir að maður læri ekkert af 60 mínútum?)
Þetta er úr laginu "My friend Goo" af plötunni "Goo" með hljómsveitinni Sonic Youth.
Gefum okkur bara að Kristallur hafi þetta.
Varpaðu fram þraut Kristallur minn.
Skoffínið var reyndar búið að giska á Sonic Youth og fékk neitun. Ég nenni hins vegar persónulega ekki að bíða eftir réttu svari lengur. Kristallur má vel ræna honum mín vegna.
Kemur ein frekar létt til þess að koma þessu almennilega í gang aftur.
Þú veist ég er fæddur til að tapa, og veðmál eru fyrir apa,
en þannig vil ég hafa það elskan,
Hver flutti og af hvað plötu er lagið?
Þetta er vitanlega Spaðaás með Motörhead.
Lagið sem átti að verða jólalag Baggalúts 2003, ef ég man rétt.
Þetta er vitanlega Spaðaás með Motörhead.
Lagið sem átti að verða jólalag Baggalúts 2003, ef ég man rétt.
Þetta mun vera rétt. Verður þetta ekki bara jólalag Baggalúts 2005?