— GESTAPÓ —
Ný apategund
» Gestapó   » Efst á baugi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Lómagnúpur 26/5/05 11:57

Falsmiðill nokkur á hinu svokallaða "interneti" heldur því fram að ný apategund hafi fundist. Fréttin er á útlensku.

Ef satt reynist, eru þetta stórmerk tíðindi. Í ljósi einkennilegrar sýnar falsmiðlanna á sannleikan ber þó að hafa allan vara á við lestur slíkra frétta. En reynist þetta rétt, eru þá grunneindir baggalútstilverunnar ekki komnar í uppnám? Mun óhjákvæmileg spennulosun þá ekki orsaka endurröðun bagglýzkra ómeinda á astralplaninu? Sjálfum finnst ég ég finna fyrir titringi, rétt eins og í potti fylltum vatni sem er í þann veginn að fara að sjóða.

Það var og.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 26/5/05 12:09

Þetta er spennandi fundur, ef sannur reynist. Ég sé hins vegar ekki hvernig þetta ætti að hrista í hinni baggalútísku tilveru, nema að því leytinu til að nú gæti enn ein apategundin bæst við úrval apa sem hér lifa.

Þessi þráður á frekar heima hjá Vísindaakademíunni.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Lómagnúpur 26/5/05 12:18

Æ, já auðvitað. Kannski að góðhjartaður friðargæsluliði geti kippt því í liðinn.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 26/5/05 13:18

Lómagnúpur mælti:

En reynist þetta rétt, eru þá grunneindir baggalútstilverunnar ekki komnar í uppnám? Mun óhjákvæmileg spennulosun þá ekki orsaka endurröðun bagglýzkra ómeinda á astralplaninu? Sjálfum finnst ég ég finna fyrir titringi, rétt eins og í potti fylltum vatni sem er í þann veginn að fara að sjóða.

Eigi kæmi oss á óvart að skrumgleypirinn alræmdi tengdist þessu eitthvað því áhrif hans eru einmitt svipuð því sem Lómagnúpur lýsir sje þess gætt að nálgast hann ei um of. En það vekur þá spurningu hvort ekki sje þá hægt að eyða skrumgleypinum með svipuðum aðferðum, þ.e. annaðhvort með því að finna enn fleiri apategundir eða með andhverfunni af þessu, þ.e. með því að útrýma einhverri apategund.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 26/5/05 13:33

Óskaplega eru þessir kanar vitlausir... þetta er bauv!

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dr. Schwitz 9/8/05 16:23

Svisslendingar eru ekki komnir af öpum þannig að við kippum okkur ekkert sérlega upp við þetta. Verra þætti okkur ef fundist hefði ný tegund af engisprettum, enda hafa margar uppskerur farið fyrir lítið eftir heimsókn þeirrar plágu.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 9/8/05 20:37

Auvitað eru Svisslendingar ekki komnir af öpum, það kemur mér á óvart að nokkrum hafi dottið það í hug. Allir vita að Svisslendingar eru blanda af mannverum og fjallageitum.

LOKAÐ
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: