Komdu sæll Ísbjörn.
Meðan þú fremur ekki brot á nýliðalöggjöfinni sem að ég vinn að þá á okkur eftir að koma vel saman.
Heill og sæll mminn kæri Ísbjörn. Velkominn á Baggalútinn góða. Má nokkuð bjóða þér kaffi og bakkelsi? Hóar í mig ef þú vilt. Á nóg að frystum Oreo kexkökum frá 1997.
Velkominn... viltu ís björn? Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri en áttar sig svo á að þessi brandari kláraðist fyrir siðaskipti og forðar sér
Blessaður Bjössi minn og velkominn hingað. Ég vona að það sé allt gott að frétta af þínum heimaslóðum, var nokkuð farið að blota að ráði?
Nanoq!
Islandi-mi ogaasi, Ísbjörn
BAAAAAAAARIIT! SIIIILAMUT!!!
Gaapunga assut
Vertu velkominn. Sjáumst svo í ágúst býst ég við! Glottir eins og fífl
Nanoq!
Islandi-mi ogaasi, Ísbjörn
BAAAAAAAARIIT! SIIIILAMUT!!!
Gaapunga assut
Þarft ekki að öskra svona þó þú sjert svangur þarna selshreifaætan þín!
Fyrirgefðu Ittu kallinum. Ísbjörn á Grænlensku er víst Nanoq og veldur ætíð hárrisi aftur á hnakka. Sennilega kom einhver skelfing yfir hann.
Jeg er nú ekki viss um að það sje svo slæmt. Jú kanski fyrir ættingja og auðtrúa vini. Við gætum okkar.