Velkominn Gizur. Finnst samt að þú ættir að heita Gizzur. Eða jafnvel Gißur.
Eða kannski Gißur Starir þegjandi út í loftið
Aha... Vladimir, mikið finnst mér gaman að við skulum hugsa eins Ljómar upp
Velkominn Gissur, Gizzur eða hvað það nú var/verður í framhaldinu.
Persónulega finnst mér Gissur vera þjóðlegast af þessum tillögum, en það er aðeins mín skoðun og þarf ekki að endurspegla skoðun Baggalýtiskra Gestapóa Blikkar nýliðann stríðnislega
Kallaðu þig það sem þú vilt... ég ber ekki ábyrgð á því ef nafnið verður þér síðan til trafala. ... veldu vel.
Gizur fer yður vel, og meira að segja forn-íslenzkt, þó það yrði eigi fyrzta val hjá oss.
Gizur fer yður vel, og meira að segja forn-íslenzkt, þó það yrði eigi fyrzta val hjá oss.
Nafnið þitt er jú soldið skrítið líka
og væri áhugavert að vita hversu langan tíma það tók þig hugsuður að gera það að fyrsta vali og hvers vegna ?
Ég heiti Gizur. Gizur er lögleg mynd nafnsins Gissur og var notuð í mörg ár. Enginn held ég að hafi verið skírður þessu nafni síðan í árdaga. Ég valdi Sigurz sem eftirnafn þar sem það er einnig löglegt og var notað lengi. En þetta nafn er vissulega siðlaust. Löglegt, en siðlaust.
Staldrið aðeins við gott fólk og bíðið augnablik með ykkar góðu móttökur. Má ég spyrja Gizur hver sé ástæða þess að þú nýkominn í raðir okkar heiðvirðra Bagglýtinga, lætur þitt fyrsta verk hér vera að stofna athvarf illmenna á borð við þig, eins og þú segir orðrétt?
Ég heiti Gizur. Gizur er lögleg mynd nafnsins Gissur og var notuð í mörg ár. Enginn held ég að hafi verið skírður þessu nafni síðan í árdaga. Ég valdi Sigurz sem eftirnafn þar sem það er einnig löglegt og var notað lengi. En þetta nafn er vissulega siðlaust. Löglegt, en siðlaust.
Er farin að halda að þú hafir tekið vitlausan strætó, eða verið fleygt út áður en að endastöðinni við Austurvöll kom.
Ég er nýr á hverjum degi.
Gizur fer yður vel, og meira að segja forn-íslenzkt, þó það yrði eigi fyrzta val hjá oss.
Nafnið þitt er jú soldið skrítið líka
og væri áhugavert að vita hversu langan tíma það tók þig hugsuður að gera það að fyrsta vali og hvers vegna ?
Getið þér hugsað yður nokkuð er færi oss betur?