Verma mér vítiseldar
veit ég heitt þeir loga.
Syndir mínar eru seldar
með samviskuna roga
í víti þjakar vetur ei
í víti loga eldar
í víti njóta varmans grey
í víti þegar kveldar
í vítaspyrnu vondur Móri
í vítissóta hyggur
í víti hitaveitustjóri
í víti Áka liggur
víta þarna verður er
vítisári ljótur
vítishorn þar veita ber
visiteri þrjótur
Frá teignum heyrist gnýstran tanna, væl og ekkasog.
Því Teufel vill sko ekki að leikmenn kýti.
Hann kallar dimmum heljarróm: Ég stöðva þetta strax. Og
hendi víti!
Skammast ég og skil ei vel.
Skrýtið!
Víst er eftir vist her hel-
vítið!
Limrur er kyndugt að kveða
kúnstugt er við þær að streða,
ég pikka þær inn,
á péséinn minn,
og prenta þær svo út á meða.
Langeldar hjá Belsebubba
brenna dag og nótt
ærslafullir ýtar gubba
ölsins veitist gnótt
Enginn þarf að syngja sálma
séra hvergi finnst
bænakvak er klerkar mjálma
Kölski brúkar minnst
Kynsvall er þar iðkað lengi
eins og maraþon
gliðrur mæða graða drengi
gjarnan lon og don
Hörpuleiknum hampa fáir
heldur skara bál
þungarokk er þyrnum stráir
þykir besta mál
Eiturlyf þar engu spilla
eða sjúkdómsnauð
hjörðin ekki óttast kvilla
enda löngu dauð
Una þar við ótal lesti
óhrein börn í leik
gamna sér að góðum kesti
gleðjast, vaða reyk
Skýjum ofar englar vingla
æðri þiggja hlýf
eilífð þar í efra dingla
ekkert þekkja líf
ÞEGAR ÞÚ ERT UNGUR
ÞÁ ERTU TIL Í SLAGINN,
OG GÆTIR VERIÐ AÐ ÞVÍ
ALLAN HEILA DAGINN.
-------------------------
SVO ÞEGAR ÞÚ ERT KOMINN
SVONA UM MIÐJAN ALDUR.
FER AÐ DAPRAST FLUGIÐ
EN FINNST SAMT ENGIN GALDUR,
AÐ FARA Í BÓL MEÐ KONUM,
OG VERA NÓGU KALDUR.
----------------------------
SÆLLÍ SINNI NÚ ÉG ER
SENN ER KOMINN HÁTTATÍMI
BRÁÐUM FER AÐ HALLA MÉR
HÆTTUR ÞESSU RÍMI,