Söngvaseiður sér nú sól
síst er það nú leitt.
Pínlega pirrandi fól
passlega nafnið þitt breitt!
Gef oss í gær vort daglegt brauð
geipifullt af vítamínum
Hækkar sólin himni á
heldur skánar spáin
Spenntur karlinn segir þá
þannig spáir þráinn.
[quote="Blástakkur"]Söngvaseiður sér nú sól
síst er það nú leitt.
Pínlega pirrandi fól
passlega nafnið þitt breitt!
Gef oss í gær vort daglegt brauð
geipifullt af vítamínum
Að kveðast á við svona sauð
senn gerum hon við grínum!!
Mannasiði seint mun læra
mikil gunga svartans höfða
Mannasiði seint mun læra
mikil gunga svartans höfða
Kann þó kæri nafn að færa
Kengréttri stærð því göfga! (bleh)
Súr er Semmningur af því að
Sjaldan eða aldrei hann hóf sér kann
Súr er Semmningur af því að
Sjaldan eða aldrei hann hóf sér kann
Best væri bráðum að fara í bað
ellegar báðir lendum í bann.
Þó uppgjöf hérna þekkist ekki
þarna sést í friðarfána Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Þó uppgjöf hjerna þekkist ekki,
þarna sjest í friðarfána.
Allt er komið hér í kjekki,
kanski veðrið fari að skána.
-----------------------------------
Hrannast kólgu klakkar festing á,
senn er komið að þorra lokum.
Hrannast kólgu klakkar festing á,
senn er komið að þorra lokum.
Sumarið mun koma sjáið þá,
súld og rigningu með þokum.
Fyllerí er fanta gott,
fullur er ég bestur.
Fyllirí er fanta flott
fullur er ég bestur.
Þetta þikir æði gott
það að vera gestur.----------n vf Með stæl og hana nú sagði hænan,
þegar hún lagðist upp í loft,
------------------------------------------------------------------------
Gefðu mér í glasið lítið tár,
gleðja eflaust það mundi mig.
Gefðu mér í glasið lítið tár,
gleðja eflaust það mundi mig.
Eflaust yrðir ekki af því fár,
eða hlytir af því slæmt ilsig.
Kólna tekur kvölda fer,
Kári tekur völd.
Kólna tekur kvölda fer,
Kári tekur völd.
Hverfur heljarinnar her
hvert fer hann í kvöld?
Marserar sú mikla fylking
mega stoltir vera
Marserar sú mikla fylking
mega stoltir vera
Bölvuð yrði þeirra bylting
nota báðir stera
Klárir kunnir andans menn
kenna betri siði
Klárir kunnir andans menn
kenna betri siði
Vona þeir að verði
vænna og minna á iði
Hvar er hatturinn minn
hái skatturinn hans
Hvar er hatturinn minn
hái skatturinn hans
Komdu karl,hérna inn
í kotið manns.
Hattinn háa finnum brátt
hatrammir við leitum
Hattinn háa finnum brátt
hatrammir við leitum
leitum bæði lágt og hátt
leggjumst svo með geitum
Gaman er að kveðí kút
karlar höldum þræði
Gaman er að kveðí kút
karlar höldum þræði
Ort er allvel oní sút
yrkjum ei í bræði
Vinir saman safnast hér
syngja, kveða og kyrja
Vinir saman safnast hér
syngja, kveða og kyrja
Leibb'í stuði ávallt er
eigi þarf að spyrja
Kvöl og pína kalla ég
að kveða botna suma
Kvöl og pína kalla ég
að kveða botna suma
Þrautin þyngri er alveg
á þokkalegum enda að luma
Kveðið oní grasið græna
gantast bræður dag og nótt
Kvöl og pína kalla ég
að kveða botna suma
Erfitt er að ríma „ég“
en ekki fyrir Tuma.
Því Tumi hann er tittur klár
telur fátt eitt flókið