Loksins koma menn í útvarpið sem þora að segja frá því sem er í raun og veru að gerast í heiminum
Já, þetta var ágætt hjá piltunum. Allavega það sem ég heyrði svona í bláendann á þessu.
Þetta eru nú meiri grallararnir.
Ef maður tekur upp þættina, má setja þá á netið?
Mikið ansvítli eru þeir alltaf skemmtilegir; maður barasta hlær hátt og í hljóði. Samstarfsmenn mínir (þeir fáu sem ekki hlusta á útvarp Baggalút) eru farnir að gefa mér illt auga hlær enn innilega að átsjúklingnum
Hann ku vera endurfluttur í Popplandi milli 1 og 2 á morgun. Ekki missa af því!
hvað er „á morgun“ ?
Starir þegjandi út í loftið
"Á morgun" var í gær. Og þátturinn var ekki endurfluttur í Popp(h)landi.
Bölvar Rás 2 herfilega
Bölvað drasl þetta hland.
Fæ ég þá aldrei að hlusta á þá þætti sem ég missti af?
Dæsir mæðulega og byrjar að kjökra