Óður til eldsins
Ef eldur jarðar mundi kulna í hel,
yrði það jarðarinnar hinsti hrynjandi.
Því mun Eldsmiðjan gæta eldsins vel,
og af einurð ávallt halda honum lifandi.
Þetta er hið sérkennilega kvæði sem tekur á móti manni á eldsmidjan.is, þeim eðla vef. Held ég að Bagglýtingar geti gert mun betur en þennan slakkjafta sambarning, og skora ég á Hlewagastr fyrstan manna um að kasta fram kvæðiskorni um eldsmiðjupizzur.
Slíkan leirburð langt í frá menn þola
lítil auglýsing af slíku kvæði.
En brynni Eldsmiðjan til kaldra kola
kættust menn og fengju loksins næði.
Fjandinn hefur á fólkinu tök
freistarans brellur eru kunnar
Sálirnar hafa við Satan mök
í syndanna loga Eldsmiðjunnar.
Sér grafa Pizzuætur gröf.
Gráðostabökuna hann skar.
Handa ykkur hef ég gjöf.
Hamborgara og franskar.
Pizzu finnst mér pjatlan góð,
með pöru og góðu víni
hana maula og í mig tróð,
makaður um kjaft og tríni.
Þegar sækjir svengd að mér
senda læt mér pizzu,
í versta falli sjálfur fer
og freta á hana úr byssu.
Palli karlinn pizzu steikir.
Paufast um með ost og lauk.
Úti í pásu Oddgeir reykir.
Enginn treystir þessum gauk.
Með pepperóní panta ég
pizzu oft að kveldi.
Hún er grilluð girnileg
við glóð úr vítiseldi.
Heyrði ég sögu harla góða
henni varla trúað gat.
Þegar fíflin fóru að bjóða
flatböku með þorramat.
Þorrapizzan þykir mér
þvílík snilldar hugmynd
Pepperoni, pæklað smér.
Pung og svið af kind.
Lundarbagga og,loðna gæru,
líst mér betur á
obbolítila, ostamæru
pizzunni, ofaná.
Pizza, pasta, rjómaostur
pottþétt hundamatur
Lurðulegur veislukostur
liggur eftir flatur
Alltaf verð ég ofur hissa
á þeim funa.
Eina ráðið er að pissa
á eldsmiðjuna.
Ekki er hægt að slökkva eld
ef þú ætlar bara að pissa áann
En pizzu eflaust fæ í kveld
úr Eldsmiðjunni, og gráan.
Eldsmiðjunnar úldnu bökur
illa leika gestina.
Uppþembdir með innantökur
æla svo í restina.
Eldsmiðjan skitu skapar
skemmir voran maga
eldsmiðju leiðinda apar
eyðileggja okkar daga
eldsmiðjupizzum í pæli
passlega vísan þó tæli
sé æti þar eins
það er ei til neins
því vafalaust öllu þá æli
pizza er eins og píkudjús
piltafóður
oft er súr samt ét ég fús
ávallt góður
Ég smakkað´ úr smiðjunnar eldi
smjörgreiddra ítala fóður
upp því ég óðara seldi
með angistarkvölum í rjóður.