Hraun! - A beutiful way to die
Two of us - Bítlarnir
Bubbi - Rómeó og Júlía (ætti það kannski að vera Hakuchi og Júlía) setur upp skepnulegt glott og forðar sér
Blonde Redhead - I am there while you choke on me.
Hef vanrækt að kíkja á þessa hljómsveit. Miðað við fyrstu kynni virðist þetta vera fjandi gott band.
Blonde Redhead - I am there while you choke on me.
Hef vanrækt að kíkja á þessa hljómsveit. Miðað við fyrstu kynni virðist þetta vera fjandi gott band.
Hmm.. minnir að ég hafi farið á Blonde Redhead tónleika á hróarskeldu í fyrra..
Joe Cocker - The Letter
Joe Cocker karlinn er annars að koma til íslands í hva.. september held ég.
Hmm.. minnir að ég hafi farið á Blonde Redhead tónleika á hróarskeldu í fyrra..
Joe Cocker - The Letter
Joe Cocker karlinn er annars að koma til íslands í hva.. september held ég.
...og miðasalan hófst klukkan tíu í morgun
Þá er örugglega uppselt.. það áttu víst að vera ofboðslega fáir miðar.
Jói er magnaður blússálarsöngvari en hefur því miður lagt fjörinu og tekið upp miðjumoðslegt ballöðugaul síðustu áratugi.
Téð The Letter og Cry Me A River eru dúndrandi stuðsnilld.
Já.. og auðvitað Summer in the City og Don't let me be misunderstood!
Hvað svo með útgáfu hans af With A Little Help From My Friends? Þar breytir hann væmnu og saklausu Bítlapopplagi í tilfinningaþrungna ballöðu. Nokkuð magnað.
Heaven Generalprufa er alveg ólýsanleg snilld - dáleiðandi flutningur - ekki ósvipuð upplifun og að horfa á Lavalampa.
Þið vitið, maður er alltaf spenntur að sjá hvaða ólögulega form myndast næst í lampanum.
Radio Ga Ga með hljómsveitinni Electric Six á X-inu FM97,7...
Er endurfædda X-ið aftur komið á stjá?
Er þá BBC horfið aftur?
Þetta eru ótrúlegir asnar hjá 365 miðlum (ótrúlega asnalegt nafn líka). Þetta er algert fíaskó hjá þeim að leggja niður X-ið, verða síðan voðalega undrandi þegar stór hluti ungra útvarpshlustenda vill bara ekkert hlusta á frethólkana á effemm957 spila Scooter eurotrashpopp og byrja síðan aftur með stöðina af því þeir eru að skíta í brækurnar yfir því að gamla Xið lifnaði aftur við á annarri bylgjulengd og blómstraði.
Fífl. Það ætti að reka þá sem eru yfir þessu batteríi fyrir svona heimsku. Það var alltaf deginum ljósara að X-ið hafði fína hlustun, sérstaklega Tvíhöfði. Hins vegar komu engar auglýsingatekjur fyrir dæmið. Eðlilega þenkjandi fólk með vott af heilbrigðri skynsemi hefði rekið fólkið í markaðsdeildinni fyrir að mistakast að selja auglýsingar sem höfða til þessa mjög svo fjáða unga neyslualdurshóps.

Mæl þú manna heilastur. ÉG vil enn fremur nefna það að það hefur verið siður þessa fyrirtækis að opna og loka útvarpsstöðvum á víxl. Hver man eða man ekki eftir stöðvum á borð við Mono, Aðalstöðina, Gull, Klassík, Radíó, Radíó-X, Ljósvakann, Stjörnuna o.s.frv. Þarna voru ágætar stöðvar á ferð ef undanskilin er Mono sem var bara FM2. Á meðan hafa útvarpsstöðvar komið og farið frá öðrum einkaaðilum. Sólin, Brosið, Aðalstöðin(áður en hún sameinaðist veldinu) og fleiri. Enn fremur má nefna stöðvar sem hafa verið undir merkjum Pýrit fjölmiðlunar. Steríó, Íslenska stöðin, Muzik, Mix og svo nú þær sem þar eru starfræktar, KissFM og X-FM. Svo má náttúrulega alls ekki gleyma ÚTVARPI KÁNTRÍBÆ! En þegar allt kemur til alls þá eru það stabílu útvarpsstöðvarnar sem eru bestar. Það eru Rás 1 og Rás 2! Lifi Ríkisútvarpið!
Evergrey - Recreation Day.
One step at a time
Small progress seems futile,
but is as valuable as life!
Yndislegt lag um að gefast ekki upp, sama hverju þú lendir í geturðu unnið þig uppúr því.
The Darkness - I believe in a thing called love
Skrækir með og fer upp á háa C