Þetta er aldeilis, hver nornin á fætur annarri með afmæli hérna. Ekki amalegt það. Gefur Hexíu knús og kakó í tilefni dagsins.
Pilluhvað? Neitakk, ég vil frekar bara kók takk.
Æji fjandakornið. Þetta áttu að vera hamingjuóskir.
Kalaallisut qallunaa passinngilappoq Tjaavuroq
Venni vinur og Sauða-Mangi eiga rafmæli og óska ég þeim til hamingju.
Rafmælisóskir til ykkar
Hilmar
eins árs
Forseti
eins og hálfs árs
Fellaskáldið
eins og hálfs árs
Bóthildur Bjarman
hálfs árs
Noh... Bóthildur orðin stór... Hvað varð annars af henni?
það væri fínt að finna hér fínan forseta
Ha ?
Hvaða hvaða ?
enn betri forseti
Hvaða svika forseti er þetta sem á rafmæli í dag?!
Eru hér drottinssvik?
Felur sig fyrir reiði Vladimirs
Til að valda ekki úlfúð hér þá vil ég taka það fram að ég er alls ekki réttkjörinn forseti hér. Ykkur er hins vegar öllum boðið í tekex og svart kaffi niðri á Alþingi í dag.
Vúhú!
Hleypur niðrá Alþingi og úðar í sig tekexi
Lætur sér nægja biksvart kaffið
Til hamingju, Forseti. Hvernig er svo þingdagskráin í dag?
Gefur Berserknum símaskrá til að lesa úr
Til hamingju með rafmælið hæstvirtur Forseti.
Ég vil taka fram að Forseti er ekki Forseti Baggalútíu. Minnir að hann sé forseti þingsins.