— GESTAPÓ —
Fyrripartur um skort á fyrripörtum
» Gestapó   » Kveðist á
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 28/11/03 15:26

Þegar spinnum þræði bragsins.
Þarf að hafa fyrripart.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Lyra 28/11/03 15:30

Fyrripartur hérna fínn
firrtur öllu klámi.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 28/11/03 15:49

Fyrripartur hérna fínn
firrtur öllu klámi.
Í feisi var ei Grettir frínn
fjandvininum Glámi.

‹Gefur frá sér vellíðunarstunu að loknum velheppnuðum botni›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 28/11/03 16:15

Þegar spinnum þræði bragsins.
Þarf að hafa fyrripart.
botnað get í boru dagsins
brúka kjaft og segi margt

[bora dagsins væri s.s. kvöldið; margt lesist lint]

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 29/11/03 13:43

voff mælti:

Þegar spinnum þræði bragsins.
Þarf að hafa fyrripart.

parta skvettum skaufa þvagsins
skulum ekki deila hart

‹roðnar af skömm yfir lélegum botni›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 1/12/03 17:33

Þegar spinnum þræði bragsins
þarf að hafa fyrripart.
Hann má fá hjá hundi dagsins
hrikalega sá er smart.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 5/2/04 23:48

Þegar spinnum þræði bragsinn
þarf að hafa fyrri part
Má það ei býða morgundagsinns,
mér finnst það vera fjandi hart.
-------------------------------------
Leggja samt ég ættla lið
í litla bögu.

LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: