— GESTAPÓ —
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Fergesji 1/5/05 15:51

Nú höfum vér setið inni á Baggalúti í heilan mánuð samfleytt og aldrei tekist að skrá oss út. Vér erum eins og gefur að skilja afar þreyttir á þessu og minnstu hefur munað að vér skrifuðum vitleysur vegna svefnleysis. ‹Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér›
‹Gægist inn aftur.›
Gæti einhver vinsamlegast gefið oss ráð varðandi þetta ef einhver skyldi hafa lent í svona löguðu?

Konungur Efergisistan • Gáfumálaráðherra • Flöt jörð - Slétt föt - Hrein trú • Áttum bestu endurkomuna árið 2008 • Sturtufíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 1/5/05 15:57

Getur verið að þú sért með tæki sem kallað er Eldrefur til að skrá þig inn á Baggalút? Ég hef átt í sömu vandræðum með þetta tæki en ekki með annað tæki sem kallað er Alnets könnuðurinn. Ég hef því miður ekki náð að leysa vandamálið. Hjá mér lýsir það sér þannig að aftengingin hefur áhrif á Hvað er nýtt? en ég skráist ekki út. Svo er það einkennilega að þetta vandamál á ekki við þegar ég nota annað eintak af Eldref sem ég hef aðgang að í vinnunni.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Fergesji 1/5/05 16:06

Vandamálið lýsir sér nákvæmlega eins hjá yður og hjá oss.

Konungur Efergisistan • Gáfumálaráðherra • Flöt jörð - Slétt föt - Hrein trú • Áttum bestu endurkomuna árið 2008 • Sturtufíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kynjólfur úr Keri 2/5/05 01:57

Áður fyrr þurfti ég alltaf að skrá mig inn og út – en nú hangi ég inni endalaust, jafnvel þótt ég slökkvi á vafra og vél og öllu draslinu. Mér mætir gleiðbrosandi, hreinn og strokinn Kynjólfur um leið og farið er inn á Gestapó.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 2/5/05 05:46

Ég á hins vegar í mesta basli við að melda mig inn. Veit einhver hvaða auga það er sem er neðst á skjánum hjá mér með rauðu merki yfir? (svona allur akstur bannaður)

GESTUR
 • Svara • Vitna í • 
Nývaknaður! 2/5/05 06:52

Það heitir gagnaleyndarskýrsla á Íslensku og segir til um hvaða dúsur hafa takmarkaðan aðgang eða er lokað og er í samræmi við privacy stillingar þínar.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 2/5/05 09:20

Ég þarf augljóslega að setjast yfir eldrefsprófanir með órangútununum mínum. Núverandi stillingar senda einhverja kökuflís inn á tölvurnar ykkar og það er þeim að þakka/kenna að þið innskráist sjálfkrafa. Þetta er augljóslega bilað í firefox, sem er miður.

Vímus, sennilega eru öryggisstillingar þínar of hátt settar, þú þyrftir sennilega að bæta baggalutur.is inn sem öruggu svæði í privacy-stillingunum í IE.

Ætli ég verði ekki að snudda eitthvað á heimasvæði phpBB og finna á þessu lausn - nema auðvitað Þarfagreinir eða annar góður gútan hafi ráð undir rifi.

» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: