Bjóðið þessu liði bara í partý og látið Vímus blanda bolluna. Það ætti að kjafta hver tuska á liðinu og öll leyndarmál afhjúpuð.
-
Svo við höldum þræðinum: það er lenska hérna að þegja öll óþægileg mál í hel. Ýmislegt misjafnt hefur komið upp í gegnum tíðina en stjórnvöld hafa alltaf komist upp með að þegja allt í hel. Okkur skortir einbeitingu til að halda þræði lengur en í eina til tvær vikur í senn. Mál Árna Johnsen er eina undantekningin frá þessu.
Sammála Haraldi hér síðast... Olíufélögin... hvernig stendur það eiginlega á ekki að fara að kæra þessa menn? Á að þegja þetta í hel, þar til glæpurinn fyrnist? Góðvinir ríkisstjórnarinnar flestir er það ekki, þessir fyrrverandi forstjórar?
Hérna er ágæt yfirlitsmynd yfir eignatengslin. Þetta er alveg eins og dómínóspil. Ef KB fer á hausinn er bara hægt að loka Ísland h/f
http://malefnin.com/ib/uploads/post-3031-1113821626.jpg[/quote]
Athyglisvert. Auðvitað þurfa einhver skandinavísk blöð að gera svona fróðlegar skýringarmyndir. Íslenskir blaðamenn eru of vitlausir til að geta teiknað svona flott.
Ugla? ekki ertu egilsdóttir? cuz if you are, þá er snyrtibuddan þín ennþá uppi á hillu á baðinu hjá mér...
Ugla? ekki ertu egilsdóttir? cuz if you are, þá er snyrtibuddan þín ennþá uppi á hillu á baðinu hjá mér...
Þú mátt bara eiga hana Valdi minn, þú þarft meira á henni að halda en ég.