Súlumær sóma kær
sýnir tær,
Dansinn duna fær,
digur lær.
-------------------ö
Öslar yfir Ölvusá,
ölvað fífl.
RAMMA VIL EG RJETTAN FYRST,
REIP ER VIÐ AÐ DRAGA,
MARGA HEF EG KONU KYST
OG KREIST UM MÍNA DAGA.
--------------------------------
KARLINN ALLTAF RÍFUR KJAFT,
MEÐAN KERLINGIN SEGIR EKKI ORÐ.
KARLINN ALLTAF RÍFUR KJAFT,
MEÐAN KERLINGIN SEGIR EKKI ORÐ.
í hana vantar varla kraft
vænir fætur og fráleitt síðri borð
sem björn í hýði húki nú
hérna bíð og vona
Gríðarlega er gott að sofa
gert það hef ég vel í nótt.
Dreymdi kátur Annan Kofa
kyrja limrur títt og ótt.
Áttavilltir andfætlingar
allir fagna sumri nú.
Áttavilltir andfætlingar
allir fagna sumri nú.
Þrauta píndir þurfalingar.
Þrota- skiptist andans -bú.
Uppi í fjalli allt er hvítt.
Ógnin býr í snjónum.
Uppi í fjalli allt er hvítt.
Ógnin býr í snjónum.
Þegar skíðað færðu frítt
forseta með hjónum.
Heima stjórnar hærugrár
heimdellingur landi.
Heima stjórnar hærugrár
heimdellingur landi.
Andlitsfarvinn ýldublár
og völdin byggð á sandi.
Létt er fiðlan listasmíð
Lögin hljóma fögur.
Létt er fiðlan listasmíð.
Lögin hljóma fögur.
Tindra óma-blikin blíð
- beiskjuþvottalögur.
Kartöflur með kjöti vil
og kál en enga sósu
Siginn vel mér fiskur finnst
fáránlega góður
Sterkum böndum líka bindst,
beljum, alveg óður.
Verkast skata og verður best
ef vel er á hana migið.
Verkast skata og verður best
ef vel er á hana migið.
Það hjálpar varla að skamma hest
ef í hægðir hans er stigið.
Nú kólnar yfir og kvefið sækir
komið er fram í febrúar.
Nú kólnar yfir og kvefið sækir
komið er fram í febrúar.
Sogar upp í hálsinn, hrækir,
hland slettist á buxurnar.
Hnoðinn mör og migna skötu
melta vestfirðingar.
Hnoðinn mör og migna skötu
melta vestfirðingar.
hreifa sels og súrt úr fötu
sveyja vesalingar
lifa þeir á landins gæðum
líkar vel
Lifa þeir á landins gæðum.
Líkar vel.
Eldur þeirra er í æðum
Eta sel.
Bestur finnst mér hákarlinn og brennivínið með
Bærilegt er hangiket og rófustappa.
Bestur finnst mér hákarlinn og brennivínið með
Bærilegt er hangiket og rófustappa
borða get ég harðfiskin það bætir mitt geð
borið fram á milli sviðalappa
Hrossakjötið hallar á
hentar vel á þorra
Hrossakjötið hallar á
hentar vel á þorra
Mætti ég þá frekar fá
fasana eða orra?
Hrossin eru hestamanns,
heimsins bestu vinir.
Hrossin eru hestamanns,
heimsins bestu vinir.
Hestaætur heiðingjans,
höfuðsyndasynir.
Á gæðunum gæðing þekki
gæða jafnvel hefur hrekki.
Á gæðunum gæðing þekki
gæða jafnvel hefur hrekki.
Tökum við tafarlaust gestastekki
og troðum þeim ofan í sekki
Vafrandi vísa er vinsæl skvísa
á vellandi landi elda og ísa
Vafrandi vísa er vinsæl skvísa
á vellandi landi elda og ísa
Ofstuðluð vísa ég úti vil hýsa
upp við munum að lokum rísa
fátt er betr'en folaldið
fagmannlega reykt