— GESTAPÓ —
fyrripartur
» Gestapó   » Kveðist á
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 18/12/03 15:50

Nú er úti um nautið Saddam.
Nú eru að koma jól.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Lyra 18/12/03 16:12

Siggi er á síðum buxum
Solla á bláum kjól.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Fellaskáldið 18/12/03 20:21

mikið langar mig Ram
Með 38" hjól

(Hér á skáldið við Dodge Ram picup, með V10 bensín vél og á 38" mudder hjólbörðum)

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Síra Skammkell 18/12/03 21:22

Það væri betur viðrinið Bush.
Verra er það fól.

Hér er kveðskaparlega stuðst við jólaljóð sem svipar til þessa. Þ.e.a.s. fyrsta og þriðja lína ríma ekki.

‹Gáir sér í gaupnir og skammast sín fyrir að hafa ekki fundið orð sem rímar við Saddam›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 18/12/03 23:16

Nú er úti um nautið Saddam.
Nú eru að koma jól.
Fundu þeir líka frændann Haddam,
fyrr en haninn gól.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 19/12/03 02:37

Nú er úti um nautið Saddam.
Nú eru að koma jól.kaninn segir "kill him Goddam"
kom með rafmagnsstól

‹Roðnar og flissar eins og smástelpa›

GESTUR
 • LOKAР• 
Rawiaz 29/12/03 17:14

Nú er Goggi í njúkler-hamnum
nú eru að koma jól.
Saddam einn á brúnum buxum
biður menn um skjól.

Biður menn um skjól
biður menn um skjól.
Saddam einn á brúnum buxum
biður menn um skjól.

Georg enn í ógnarbasli
á með Hússeininn.
Fljótur hemmi finndu snöggvast
fúlan bastarðinn.

Fúlan bastarðinn,
fúlan bastarðinn.
Fljótur hemmi finndu snöggvast
fúlan bastarðinn.

Nú er úti um nautið Saddam
nú eru að koma jól
Fundu líka frændann Haddam
fyrr en haninn gól.

Fyrr en haninn gól
fyrr en haninn gól
fundu líka frændann Haddam
fyrr en haninn gól.

Goggi er í eldhúsinu
eitthvað að fást við mat.
Indæla steik hann er að færa
upp á stærðar fat.

Upp á stærðar fat,
upp á stærðar fat.
Indæla steik hann er að færa
upp á stærðar fat.

Þessi jólin þarf ei kalkún
þynnist jólastúss.
Réttur Húss(e)ins reddar öllu
ropar saddur Búss.

Ropar saddur Búss... o.s.frv...

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 2/2/04 23:48

Nú erúti um nautið Sadam,
nú eru að koma jól
Alheims hjónin Eva og Adam.
alldrei það þekktu fól.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 20/3/04 22:34

FAST ER NÚ Á SJÓINN SÓTT
SÍLDINN Í TORFUM VEÐUR,

LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: