Mér leikur forvitni á að vita hvort Hakuchi hafi gert úttekt á skeggi foringja 3. ríkisins, það hlýtur að eiga sér merka sögu, hvað segir þú um það Hakuchi?
Var ekki Woody Allen búinn að skrifa heilmikið um klækjabrögð skeggsins atarna.
Stálnótt eftir Sjón, það er nú fín skrudda.
Ég er búinn að lesa hana nokkrum sinnum en skil samt ekkert í henni. Einhvernvegin er hún samt skemtileg upplifun og Johny Triumph er svalur nagli.
Mér leikur forvitni á að vita hvort Hakuchi hafi gert úttekt á skeggi foringja 3. ríkisins, það hlýtur að eiga sér merka sögu, hvað segir þú um það Hakuchi?
Skegg Hitlers var af ætt Derkúlata sem talið er að hafi komið fyrst fram á bálplánetuni Hkrax í Andrómedustjörnuþokunni fyrir um 3 milljörðum ára. Derkúlataskeggin hafa ætíð skapað skelfilegan óskunda hvar sem þau hafa staðsett sig. Þau eru skyld myrkefni alheimisins og því í raun hreint form tortímingar sem veldur því að er þau tengja sig við mannverur umbreytast þau í tortímingarmátt sálarhafstsins; hreina illsku.
Blessunarlega þola mannverur illa langa dvöl Derkúlataskegg. Þannig tókst að sigra illmennið Hitler einna helst út af því að hugur hans og sálartetur þoldi ekki stöðugt streymi tortímingarafla sem streymdu úr efri vör hans um allan líkaman. Undir lokinn var hann farinn að missa vitið og svipti sig loks lífi eins og allir vita.
Í dag er tilvera Derkúlataskeggsins ókunn, enda hverfa þau yfirleitt sjálfkrafa í aðra vídd um leið og hýsill (Hitler í þessu tilfelli) deyr. Það verður að teljast lítil hætta á að þetta tiltekna skegg snúi aftur, en hins vegar eru fjölmörg önnur skegg af ætt Derkúlata sem ráfa um heim í leit að hýsli svo þau geti unnið sinn óskunda á öllu lífformi.
Skv. mínum útreikningum eru líkurnar á því að annað skegg lendi á jörðinni á hverjum tíma c.a. 1/50.000.000.000 þannig að við erum tiltölulega örugg, að meðaltali.
Þá er bara spurning hvort að í vetrarbraut langt langt í burtu þetta skegg sé ennþá að gera óskunda.