Já, þú verður að fara gætilegar um Herbjörn minn.
Stjórnarandstaðan er hvergi smeyk. Hún mun veita stjórninni það aðhald, sem nauðsynlegt er og við erum reiðubúin að taka við þegar núverandi spillingarvald hrökklast frá.
Hah! Ég mun sjá til þess að spilling og ólifnaður hafi sigur yfir þessu vesæla afli góðs sem þú aðhyllist.
Afli góðs ?? Eigi fyrir þá er í ríkisstjórn sitja og er það ástæða þess að tiltekinn hópur einstaklinga er skilgreindur sem sk. "stjórnarandstæðingar".
Tjahh... Ég er nú ekki vanur að flokka sjálfan mig sem góðan og ætla nú ekki að fara að lifa eftir því frekar en vanalega. Andstæðingar mínir hafa samkvæmt hefð verið flokkaðir sem góðir að vísu.
Það að andstæðingarnir teljist eigi góðir þarf eigi að þýða að vér séum góðir, þetta fer þó eftir því hvernig orð það er um ræðir (þ.e. "góðir") er skilgreint. Það væri verðugt verkefni að endurskilgreina merkingu nokkurra orða/frasa í anda 1984.
Ég get sætt mig við endurskilgreiningu ef "góður" yrði þá framvegis innan gæsalappa er talað er um mig í því sambandi.
Eigi ættu gæsalappir ávallt við, t.d. mynduð þér varla vilja slíkt í samhengi þar sem rætt er um að þér séuð góður í að vera fól.
Þar er góður náttúrulega í allt öðru samhengi og ekki notað sem lýsing á hlutlægu gildismati ákveðins einstaklings heldur sem mæling á færnisstigi.
Núna er að ganga í garð myntsláttur og endurgerð seðla. Ég vil fá vinsamleg tilmæli varðandi hvaða aðilar eiga að vera á:
myntir:
1 böggu
50 böggur
100 böggur
seðlar:
1000 böggur
5000 böggur
500.000 böggur
Brenjar, Seðlabankastjóri Baggalútíu
Ég pant vera á þúsund bagga seðlinum.
Nykur pantar myntirnar, hef alltaf langað að hafa mynd af mér inní stöðumæli Ljómar upp
Blástakkur verður á 1000 bagga seðlinum, Nykur verður á 1 böggu. En við verðum að fara drífa í að ákveða þetta allt því það kostar seðlabankann óheyrilegt fé við að hafa kveikt á vélunum en í biðstöðu.
Ég er tilbúin til að vera á 50 bagga myntini. Hef alltaf verið hrinin af fimmtíu króna mynt
Vér tækjum oss vel út á 500.000 bagga seðli.
1 bögga = Nykur
50 böggur = Jarfi
1000 = Blástakkur
5000 = Sverfill Bergmann
500.000 = Vladimir Fuckov
Og hvað? Er ég ekki á neinum seðli? Hvurslags er þetta eiginlega?