Djöfull er mín dýrsleg svengd
drynur garnahljómur
borðað gæti í bráð og lengd
belgur minn er tómur
Ef ég bara ætti flesk,
eggin til að spæla,
einnig sykrað ískalt fresk-
a ah! já hvílík sæla
Ef nú geirfugl gengi hjá
gripi ég hann og reytti
með smjeri á pönnu smellti þá
smekknum góðum beitti
Ef að veitist ekkert slíkt
ætla ég að veiða
fljótt úr pakka fituríkt
fratmeti og seyða
Seydd er pylsa, sinnep, lauk
svo með feiti ljósu
treð í brauð og tóna hrauk
tómats rauðri sósu
Heyrðu reyndar reyndist fínt
rudda þann að éta
enda löngu er það sýnt
ýmsir þetta meta
Pandabjörn og brúnuð sósa
besta æði
ég skal örn í karrí kjósa
kostafæði
Varla Grýlu vel ég sið
vondu börnin smakka ei
en glaður treð í gin og kvið
góð ef finnast krakkagrey
Barnakjöt ég borða vel
brytja þau í skólunum
síðubita í búð ég sel
steiki svo á jólunum
Stekkur hæð sína Gefur frá sér vellíðunarstunu Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann klórar sér í höfðinu Hrökklast aftur á bak og hrasar við Blótar herfilega og rífur hár sitt Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér Brestur í óstöðvandi grát Starir þegjandi út í loftið Ljómar upp Roðnar og flissar eins og smástelpa
Á jólunum er japlað fínt,
sem Jésúm aldrei þekkti.
Í fésið næst er kökum klínt,
á kristilegu slekti.
Maður kemur manns í stað
Mammon þar til kynni.
ég skal seinna jafna það
með jólaköku minni.
Naglalöginn lagaði
langar meir í slátur
sviðanasir nagaði
napur er minn hlátur
Kálfasnitsel, kálfasteik,
kálfa get ég snætt í hrönnum.
í augu af kállfum er ég veik,
eða bara kálfa af mönnum.
Froskalappir, fisk og njóla
finnst oss gott að snæða
Steiktan snák með Coca Cola
og út á smjör að bræða
Anton Berg og Búrgúndvín
Barbi prúður smakkar
en ætíð étur eins og svín
ef að bjóðast krakkar
Matur er mannsins megin
margt er í kútinn sett.
Það er saga segin
að síkkar ístra mett.
Kjetbollur og konukjet
og kattafille spísa
Með öllu þessu mann ég ét
með færni af Grund ég bísa.
Ánamaðka ogálftir tvær
ávir, skyr með rjóma,
gæsabringu og grísalær,
góbla ég allt með sóma.