Ég var nú að hugsa um að giska á þetta en mundi ekki eftir flugi. Fannst líka heldur hallærislegt að vita þetta ekki, þar sem ég ber sama nafn og pseudonym höfundarins.
Já, og Iman þessi er eiginkona D. Bowies. Nú fer maður raunverulega að skammast sín. En svona er að lesa ekki Fólk í fréttum.
Ég var nú að hugsa um að giska á þetta en mundi ekki eftir flugi. Fannst líka heldur hallærislegt að vita þetta ekki, þar sem ég ber sama nafn og pseudonym höfundarins.
Fattar allt í einu
Karen Carpenter?
Vá, ég hélt þú værir dauð.
Hlaðar byssuna.
Ég var alveg handviss um að þú hefðir látist fyrir löngu síðan.
Hleypur á eftir Isak og reynir að skjóta hann.
Róar Hakuchi með sefandi söng
Nei - ekki er það. Ég ber bara sama nafn. Svona svipað og ef þú hétir Halldór Laxness og vissir ekki hvaða bók Einar Áskell væri.
Klikk, klikk, klikk....
Ég skil. Ég biðst afsökunar á kúlnaregninu. Þegar Karen Carpenter er annars vegar er best að skjóta fyrst og spyrja síðar.
Hólstrar .44 Magnuminn.
Best að reyna að láta sér detta einhvern frasa í hug.
Ég var nú að hugsa um að giska á þetta en mundi ekki eftir flugi. Fannst líka heldur hallærislegt að vita þetta ekki, þar sem ég ber sama nafn og pseudonym höfundarins.
Það gladdi mig vissulega að sjá Isak Dinesen spreyta sig á Out of Africa.
Mig grunaði það Júlía. Ég þakka fyrir þessa skemmtilega súrrealísku reynslu.
Sjáum hvort ég man þetta rétt.
Maður er í herbergi sínu, hurðin er opin, hann snýr baki við hurðina er að dútla eitthvað. Kvenrödd heyrist. Hann snýr sér við og þar stendur fögur og sjálfsörugg kona í dyrunum. Þau skiptast á orðum. Þau eru greinilega mjög hrifin af hvoru öðru en fela það undir svölu yfirborðinu. Samtalið er eitt stórt daður. Hún spyr um eldspýtur. Hann snýr sér við, nær í eldspýturnar og kastar til hennar hinum megin í herberginu. Hún kveður hann með tælandi augnaráði og stríðnislegum en kynferðislega þrungnum orðum.
Æ þetta er eitthvað með Bogart er það ekki?
The Maltese Falcon?
Segi þá bara Casablanca. Er það of augljóst?
Hmm ... þekki þetta ekki alveg nógu vel.
To Have And Have Not?
Ahh Bogart. Vissi að ég kannaðist við þetta. Er þetta Key Largo.
Og það var rétt hjá Þarfagreini!
Þetta er To Have and Have Not. Myndin sem kynnti Lauren Bacall fyrir umheiminum. Í lok þessarar senu fer hún með eina frægustu setningu kvikmyndanna:
„You know how to whistle don't you Steve? You just put your lips together and blow.“
Myndin er ágæt en samband Bogie og Bacall er óborganlegt. Þau eru svo dúndrandi hrifin af hvoru öðru að það skín í gegn. Karakterar þeirra áttu ekki að verða elskendur í upphaflega handritinu en leikstjórinn Howard Hawks (snillingur), neyddist til að breyta handritinu þannig að þau urðu elskendur því kemíkin á milli Bógí og Bacall var svo rosaleg að hann sá að það væri ekki séns að áhorfendur myndu kaupa það að Bogí myndi falla fyrir annarri konu en Bacall (þannig var planið í handritinu). Þau bara gátu ekki falið hrifningu sína. Fallegt.