Þorri gengur enn í garð,
gleði drengja vaskra.
fullir þrengja fóðri í skarð
freistar rengið naskra.
Bull & Steypa
Pönkari með pung á disk
potar í og nartar.[/i]
Pönkari með pung á disk
potar í og nartarheldur vildi hörpudisk
hrópar því og kvartar
kokkur forn þá kemur að
kuta meður þúngan
kokkur forn þá kemur að
kuta meður þúngann
rekur inn og reynir blað
rífur undan pungann.
Smjattar súrum eistum á
sællega nú kokkur
Smjattar súrum eistum á
sællega nú kokkur
aldrei framar sæði sá
syrgir kindaflokkur.
Lundabagga og loðið smér
lystir mig að smakka.
Lundabagga og loðið smér
lystir mig að smakka.
Þráan hval og hland úr Þér
hellt á þorrabakka.
Slátur þjóðlegt þykir best,
þykkt með kindadreyra.
Slátur þjóðlegt þykir best,
þykkt með kindadreyra
nögum svæsin sviðarest
svælum loðið eyra
hákarlinn ég hakka nú
hám'af lífsins krafti
hákarlinn ég hakka nú
hám'af lífsins krafti
Þorramatinn þakka ég,
þegi og held svo kjafti.
Handbolta er heimskulegt
hér á landi að stunda.
Handbolta er heimskulegt
hér á landi að stunda.
Allt er fleyið alltof lekt
utan töflufunda.
Sat ég úti í sjoppu
sá þar ganga inn.
Handbolta er heimskulegt
hér á landi að stunda.
Í næðingi er notalegt
að naga reyktan lunda
Handbolta er heimskulegt
hér á landi að stunda.
Agli var um tungu tregt
að tal´um gamla hunda.
Sat ég úti í sjoppu
sá þar ganga inn.
litla hundsins loppu
og lóða tíkarskinn
hundur gelti hávært
hnífur blasti við
hundur gelti hávært
hnífur blasti við
lítið ýlfur, lágvært;
lekur blóð úr kvið.
Davíð hann er durtur,
dónalegur mjög.
Davíð hann er durtur,
dónalegur mjög.En sósugrísinn surtur
syngur gömul lög
Golíat var gríðar-
gríðarlega stór
[krummo minn þessi fyrripartur er af fyrstu síðu og löngu búið að botna hann, þótt botninnsé nú bara ágætur hjá þér.BP]
Upp í loftið flýgur fugl
fyrir utan glugga.
Þettað er sko þvílikt bull,
það var bara mugga.
-----------------------------,
Nóttin hún er niðadimm,
nálgast háttatími.
tæknin hérna heldur grimm
hleypir saman rími
Júgursmyrli smurði hann
smælandi á garminn.
Sdlengdi svo í stóran mann
steini, hvíldi'ei arminn
[color=darkred]asskoti var nú erfitt að stilla sig um að nota rímorðin "rann" og "þarminn"
Golíat að garði féll
gengu úr skorðum fjöllin
Golíat að garði féll,
gengu úr skorðum fjöllin.
Gerðist það með góðum hvell,
gullu hlátrasköllin.
Davíð ölið drakk en hvar,
drökmu fyrir greiddi?
Davíð ölið drakk en hvar,
drökmu fyrir greiddi?
Kannski hann í Kandahar
krónum sínum eyddi
hákarl éta halir enn
hampa brennivíni
Hákarl éta halir enn
Hampa brennivíni
Oní trogi svín og menn.
Æpi, góla, hrýni.
Í húsinu við Austurvöll.
Úti er nú friður.
Í húsinu við Austurvöll.
Úti er nú friður.
Aldrei sat ég um þá höll
Ekk'er það minn siður
Sú er glöð með gubbupest!
Grá og blaut og skítug
Í húsinu við Austurvöll.
Úti er nú friður.
Megi þau þar inni öll
eta tjöru og fiður.
Sú er glöð með gubbupest!
Grá og blaut og skítug
Orðin eins og fólk er flest
fyllibytta tvítug.
Bráðum kemur betri tíð
með bankalánum.