Ja svei, það fór eins og mig grunaði svosem að grallaraspóar vínklúbbsins kæmu hér inn til að hleypa öllu í uppnám, barma sér og veifa viskípelum Tæmir kaffipottinn og hellir í hann ilmandi grænum Braga ásamt slettu af "ÚltraKóbalti" . En þið eruð samt sem áður aufúsugestir hér því KGB verður jú að ná til þeirra sem hjálpa þarf til betri vegar. Varðandi það hvað þið gerið utan þessa þráðs þá mun ég svosem ekki fetta fingur út í það, enda fjarri því að vera öfgamaður, hvað sem nokkrar nornir og galdramenn kynnu að segja varðandi það.
Ókristu fólki er að sama skapi velkomið að ganga í stúkuna, af sömu ástæðu og vínklúbbs mönnum er velkomið að vera hér, fólk verður ekki neytt til neins, fólk velur sér bara þá lífshætti sem því líkar best og vænti ég að þeir sem kynnast starfinu hér í stúkunni muni líka það ágætlega.
Og Ormlaug, ég kann þér hlýjar þakkir fyrir bakkelsið og kandísinn, afar ljúffengt. Þá væri einnig afar ljúft að fá kleinur eða ástarpunga á næsta fundi.
Og kannski áfenga konfektmola *hic*
Hva allir farnir bara?? Nykur mættur í sparifötunum með slaufu og ástar"púnga"* í bréfpoka
*Tilv. Gerpla, Halldórs Laxness
Hva allir farnir bara?? Nykur mættur í sparifötunum með slaufu og ástar"púnga"* í bréfpoka
*Tilv. Gerpla, Halldórs Laxness
Oss grunar að þér farið eigi rétt með tilvitnanir hér, þ.e. hér séu eigi nægjanlega margar tilvitnanir, vér teljum oss t.d. muna að orðið "allir" (og líklega fleiri orð) komi líka fyrir í einhverjum verka Halldórs Laxness auka "púnga". Síðan eru þau eflaust til í verkum frá því fyrir daga Halldórs og er þá stóra spurningin hvort nauðsyn sé að geta þeirra líka,

Þetta fannst mér "illskeyttur"* ritdómur Vlad.
*Tilv. Hannes H. G. Greinagerð (08.01.2004)
Er ekki í lagi að koma með smá hommanndropa
á smá glasboru ég spyr bara si svona?
nú verð eg að játa að ég veit eigi hvað hommanndropar eru, séu þeir áfengir er óæskilegt að koma með þá hingað inn. Má ekki frekar bjóða þér upp á kóbaltbætta kaplamjólk, það er öldungis góður drykkur!
Þessi þráður er alveg ófær. Hvað í dauðanum á maður að gera hérna?
Hér er ágætt að koma við ef maður hefur gert af sér sérlega slæmt fólskuverk það er eitthvað svo hreinsandi að koma hingað, einhverskonar syndaflausn.
þvær sér um hófana uppúr skírnafontinum, tekur upp tannstöngul, stangar jarðneskar leifar Ívars Sívertsen úr tönnunum
Í guðanna bænum ekki hreinsa mig af fólskuverkum! Ég verð að upphalda vissri ímynd.
Í guðanna bænum ekki hreinsa mig af fólskuverkum! Ég verð að upphalda vissri ímynd.
Engjar áhyggjur þetta er meira svona til að friða samviskuna, hún verður ekkert hreinni þó maður renni við hérna endrum eins. Hendir einni Böggu í skírnarfontinn og óskar sjálfum sér löngum, dimmum og sérlega fólskulegum stjórnarferli.
Hahaha! Ég er ekki með neina samvisku. Ég lét fjarlægja hana í skurðaðgerð fyrir 5 árum síðan.
halló halló, hvernig var það gert? horfir eftirvæntingaraugum á Blástakk
Nú það er auðvitað partur af heilanum sem sér um samvisku. Ég lét einfaldlega kippa þeirri heilastöð úr sambandi. Einnig er ég ekki lengur með upprunalegt hjarta mitt en hið nýja er gert úr stáli og kóbalti.
ó...ókei.
Ég er enn að velta fyrir mér hvað í dauðanum þessi þráður á að þýða.
ó...ókei.
Ég er enn að velta fyrir mér hvað í dauðanum þessi þráður á að þýða.
Þetta er fínn þráður, hér láta þessir hvítþvegnu andspyrnungar aldrei sjá sig enda telja þeir ekki vera þörf á syndaaflausn, sérstaklega ekki eftir að þeir eyddu hverri böggu sem þeir áttu í aflausnarbréf vor. Muhahhhahahahahahahahh... Annars átti hann Glúmur að vera með einhver skemmtiatriði hérna en hann hefur ekki látið sjá sig hér lengi, þangað til strákar þá er ég með hérna eina ákavíti og Stínu stripp alveg "fressmít" frá Hrafnistu. Ljómar upp
Glúmur mun hafa verið að leggja stund á gjaldeyriskerfishönnun.