Ég legg til að stofnað verði umræðusvæði sem myndi heita Teningaleikir, eða eitthvað í þeim dúr, fyrir alla mögulega teningaleiki. Jafnframt tel ég að fjarlægja ætti teninga úr hinum umræðusvæðunum, þessi teningamanía fer í taugarnar á mér.
Frábær hugmynd! Eða bara að gera teningaleikina að undirsvæði í Lygilega vinsælum leikjum.
Góð hugmynd
Maður gæti nú viljað kasta upp krónu á hinum svæðunum, og myndi vilja notast við teninga í staðinn. Er þetta ekki bara nýjabrum að fólk sé að varpa teningum í tíma og ótíma? Þetta lagast væntanlega eftir smátíma.
Það stóð nú alltaf til að hafa teningaleikina einskorðaða við leikjasvæðin.
Tækniórangútarnir eiga bara eftir að útfæra það, þeir eru svo skelfing trúaðir að ég fæ þá aldrei til að gera handtak fyrr en eftir páska.
Ég legg til að stofnað verði umræðusvæði sem myndi heita Teningaleikir, eða eitthvað í þeim dúr, fyrir alla mögulega teningaleiki. Jafnframt tel ég að fjarlægja ætti teninga úr hinum umræðusvæðunum, þessi teningamanía fer í taugarnar á mér.
Hér er ég hjartanlega sammála Smábagga...