Jæaja...mjólkurlítrinn bara kominn niðurí krónu...
Humm það ætti að leggja ÁTVR niður og Bjórinn í Bónus seigi ég
fari þeir svo í verðstríð þessir skrattakollarStarir og sleikjir út um
Ef ég ætla að kaupa mér mjólk í Bónus á 90 aura og ætla að greiða með einni krónu hvernig í ósköpunum ætlar afgreiðslumanneskjan að gefa mér til baka?
Þetta verðstríð hljómar vel. Kannski ég mæti með hóp af færeyskum þrælum og láti hvern og einn kaupa mjólkurlítra og kókflöskur fyrir mig?
Ef ég ætla að kaupa mér mjólk í Bónus á 90 aura og ætla að greiða með einni krónu hvernig í ósköpunum ætlar afgreiðslumanneskjan að gefa mér til baka?
Þetta er úthugsað plott hjá þeim.
Það má hámark kaupa 5 lítra þ.a. það er aldrei meira en 50 aurar sem þeir þurfa að gefa til baka. Það er svo rúnnað upp að nærstu krónu þ.a. þeir sem borga með reiðufé eru að borga heila krónu fyrir lítrann.
Ef þú borgar með korti eða ávísun færðu sennilega lítrann á 90 aura, því það er hægt að slá inn aura á posanum.
Ef ég ætla að kaupa mér mjólk í Bónus á 90 aura og ætla að greiða með einni krónu hvernig í ósköpunum ætlar afgreiðslumanneskjan að gefa mér til baka?
Þetta er málið. Það er bara verið að stela af kúnnanum.
Ég neita að versla við verslanir! ég er bara með kók og kakó tré í garðinum kjöt plöntur í beðinu, kartöflunar og annað grænmeti hleypur vilt um garðinn.
... þangað til ég áttaði mig á því að kókið var samt á tæplega 100 kall, þ.e. rúmlega 100% minna en maður borgar vanalega fyrir það. Þannig að ég varð örlítið svekktur í staðinn.
Kók á 100 kall 100% minna en kók á hvað? 200 kall? og meira en 100% minna það er afar lítið.
Kók á 200 kr - 100% afslátt = 0 krónur.
Kók á 200 kr - 50% afslátt = það er 100 kall.
Þú hefur klárlega verið illa svikinn Hakuchi. Það liggja handsprengjur á lausu einhverstaðar hérna.
Vil ég leggja til áhlaup á lágvöruverzlanir þar sem við myndum taka allt það kók sem yrði á vegi okkar ófrjálsri hendi og frelsa það þannig undan oki verðstríða og samkeppni.
Vil ég leggja til að þú verðir notaður sem varnarskjöldur á meðan á því stendur.