Mikið er ég sammála Dr. Zoidberg um ágæti hins snotra kauptúns Búðardals. Kaupfélagið (sem raunar er ekki kaupfélag) er eitt af undrum Íslands, sannkallaður fjársjóður. Allt sem mann hugsanlega vantar er þar að finna á góðum prís, sem og allt það sem mann vantar alls ekki, en langar pínulítið í. Eins má finna margt eigulegt í ágætri blómabúð staðarins, hinumegin við kaupfélagsplanið.
Ég legg til að ferðaglaðir Baggalútar miðli öðrum af þekkingu sinni um áhugaverða staði hérlendis og erlendis. Baggalútssamsteypan gæti þá enn fært út kvíarnar og gefið út ferðahandbækur - Lonely Planet hefur of lengi ráðið ferðum manna.
Fyrir þá sem vilja skemmta sér mæli ég með Grafarvogi. Þar býr hlægilegt, vitgrannt meðalmennskufólk.
Vér bendum mönnum á borð við Skabba sérstaklega á Fjallabakssvæðið en þar má finna á að nafni Brennivínskvísl.
Svo eru þær líka svona ansi hressar stelpurnar frá Búðardal.
Eru þær nema 20 stk. (sem eru á álitlegum aldri) ?
Annars hef ég nú reyndar sængað með einni úr Búðardal. Árans smæð á þessu landi.
-
Í Fljótahreppi er að finna kaupfélagið að Ketilási. Það er eitt albesta kaupfélag landsins og inniheldur meðal annars bókabúð, pósthús og grillsjoppu. Mig minnir að hakkabuffið þar hafi verið með því besta sem ég hef bragðað. Svo liggur þetta svo vel við.
Á Borgarfirði Eystri má finna príðis góða nýlenduverslun. Þar má meðal annars fá einnota veiðistöng og húfur sem eru stærðarmerktar "one size fits most"
Einstaklega góð kaup það.
-
Gaman væri nú að fá t.d. útlistanir á því hvað telst rúnturinn á hverjum stað. T.d. er mjög gaman að rúnta á Höfn í Hornafirði, þar er u.þ.b. helmingurinn af rúntinum í iðnaðarhverfi, einn þriðji er um höfnina og afgangurinn er tekinn á fæti.
Ber mér að skilja á orðum ykkar að einhverjir ykkar hafi séð ástæðu til þess að keyra út fyrir Borgarmörkin?
Erum við ekki öll heimsborgarar? Maður hefur svosum ekki (enn) farið út fyrir endamörk hins byggilega heims (sem ég tel liggja allnokkru norðan við Grafarvoginn).
Á ferðum mínum um Suðurnesin þóttist ég merkja að Garður og Sandgerði væru einn og sami rúnturinn - er það rétt? Ansi skemmtilegur bær, Sandgerði, á sinn hátt, einkum meðan verslunin Aldan var og hét.
Undir brúnni í Westminster er oft skemmtilegt að vera. Þar keypti ég tvær Tinnabækur af þýfissölum.
Ég veit það fyrir víst að bylting þýskra ferðamanna er yfirvofandi og hafa þeir notað Mjólkursamsölu Búðardals sem yfirskin nú í nokkur ár. Það er allt yfirfullt af þýskurum þarna í sveitini.
Hef þó ekki kannað þetta mál sjálfur til hlýtar, en ég hef mjög góðar sannanir og vitni fyrir þessu.
Eitt sinn álpaðist ég alla leið til Hólmavíkur og það get ég sagt ykkur að þar re ekki einn einasti kvenmaður á aldrinum 16-20. Hver einn og einasti þeirra er sendur í skóla í kaupstaðinn svo eftir sitja sárir karlmenn í aumri bið eftir túristum svo megi þeir auka kyn sitt.
Ég mæli sérstaklega eindregið með einhverskonar lífsstuðningsapparati ef þið ætlið út fyrir borgarmörkin. Eins og allir vita þá eru skilyrði til lífs takmörkuð þar og hefur súrefnisskortur og eiturgufur vond áhrif til skynsamlegrar hugsunar.