Nú er illt í efni. Svikarinn Smábaggi benti á það að Kommúnistaflokkur Baggalútíu stefnir hraðbyri í átt að því að detta niður á síðu tvö. Ég vil benda á miklar vinsældir flokksins - hann spannar núna 49 heilar síður. Geri aðrir betur. Ef þráður með 49 síður á ekki skilið límingu, hvaða þráður á þá skilið límingu; ég bara spyr?
Til að gæta sanngirni, og til að sýna að við kommarnir styðjum jöfnuð í verki, þá fer ég fram á hið sama fyrir hönd Hreintrúarflokksins, þó svo að hann sé einungis með 22 aumlegar síður. En í lýðræðissamfélagi er þó víst nauðsynlegt að öll sjónarmið heyrist, þrátt fyrir að sjónarmið Hreintrúarflokksins séu afvegaleidd og spillt með eindæmum.
Ég þakka gott hljóð.
Það er ekkert að marka ef þráður spannar 49 síður ef hann fjallar um einhverja bölvaða kommúnismavitleysu. Tuh.
Málflutningur Smábagga styrkir málstað okkar. Hreintrúarmenn eru hræddir við ítök okkar og áhrif, og vilja kæfa okkur og þaga okkur í hel.
Því segi ég enn og aftur: Leyfið röddum almúgans að hljóma, og límið þráðinn, í nafni mannréttinda og lýðræðis!
Meðan ég var í þessum skitna flokki (vil reyndar hugsa sem minnst um það) þá tók Mikill ekkert alltof vel í það. Sendu honum bara skeyti, ég vona að honum finnist það ennþá vera heimskulegt.
Þetta leiðir hugann að því er áður hefur verið minnst á, að það gæti verið gott ef hægt væri að færa þræði ofar í einstaka tilvikum án þess endilega að líma þá. Vjer erum sem sagt af einhverjum ótrúlegum ástæðum sammála Afturhaldskommatittinum í máli þessu. Slíkt gerist varla aftur á næstunni Undirbýr prentun áróðursbæklinga til að dreifa í aðsetri kommanna.
Ég er sammála þessu líka. Er enginn ritstjórnarmeðlimur tilbúinn að taka afstöðu með eða á móti þessari ágætu tillögu aðalritarans?
Mestur partur af þessu er rugl og vitleysa í bauv. Viljum við slíkt límt?
Bauvið ruglar aldrei né vitleysast. Hvurslags rógur er þetta?