Má ég vera Opinber Passív-Aggressívur Erkióvinur Ritstjórnarmeðlima Hverra Nöfn Hefjast á 'E'?
Er ekki miklu auðveldara fyrir þig að vera bara kærastan hans? (Já og auðveldara fyrir alla bara held ég)
Er ekki miklu auðveldara fyrir þig að vera bara kærastan hans? (Já og auðveldara fyrir alla bara held ég)
Nema mig og hann...
Já en það er bara aukaatriði. Í orðum Bretadrottningar legstu bara á bakið og hugsaðu um Heimsveldið.
Ég óska eftir því að fá að hafa yfir umsjón með vandræðar gemlingum. Í vandræðarmálaráðuneitinu.
Ég óska eftir því að verða „Alþjóðlegur Tóka dógur“.
Ég óska eftir því að verða „Alþjóðlegur Tóka dógur“.
Þá er það ákveðið: Bismark er dógur. Hvað svo sem það nú þýðir.
DÓLGUR þá smámuna semi er þetta.
Ég hlýt að krefjast þess að fá tafarlaust lista yfir skammstafanir helstu nefnda og embætta. Ég get ekki unnið án skammstafanna. Þingheimur gerir hróp að mér.
Ég mæli með því að þú styðjist við embættismannalista Vladimírs og skammstafir hann fyrir okkur.
Verst að þing hefur engin völd því hér ræður bara ráðsstjórnin. En það er gaman að leika sér í þykistuleik.
Hæstvirtur herra konungur.
Ég gef lítið fyrir völd þings og annarra veraldlegra leiðtoga. Valdið liggur í skrifræðinu.
Skammstafanir mun ég reyna að nota jafnóðum og þingsköp krefjast þeirra. Mun ég þar tvímælalaust nota þennan góða lista.
Hæstvirtur Vladimir virðist vera prýðis náungi, hefur augljóslega næmt auga fyrir því sem máli skiptir. Skriffinnsku.
Hvert er embætti Forseta? Er hann þingforseti? Þingritari? Gangavörður?
Ég hefði áhuga á að ráða Forseta til starfa sem siðameistara í sumarhöll minni í Möseldalnum. Ef vel tekst til mætti ræða um víðari starfsvettvang.
Er einhver byssubardagaráðherra í þessari ríkisstjórn ?
Er einhver byssubardagaráðherra í þessari ríkisstjórn ?
Byssubardagar eru bara fyrir barbara og vitleysinga. Sannir karlmenn nota sverð, háskakvendi eitur.
Ég minni á að byssubardagar, þar sem þeirra er þörf, heyra undir hasarmálaráðherra, Mosu frænku. Ef þú hefur áhuga á að ganga baggalútíska ríkinu á hönd þá getur þú sótt um stöðu byssubrands hjá Hasarmálaráðherra.