Hvað kallast fullt af einhverju?
Mér er um og ó.
Af hverju grípur þú um höfuð þér?
Hjálparstofnun kirkjunnar varð uppvís að svindli.
Af hverju komst Ísland á listann yfir spilltustu þjóðirnar?
Hann hallar svo fram.
Af hverju losaði ríkisstjórnin okkur við fjárlagahallann?
Hjá henni var ekkert að fá nema pólskar pústgreinar.
Af hverju slitnaði upp úr sambandi þínu og Ömmu Andar?
Það var einhverveginn á þessa leið: "Fram ætla ég, útí göngutúr........"
hvernig var kvæðið sem Bauv samdi um árið
Svona, þrjátíu og fimm gráður, sirka.
Hvað er heitt í Singapore núna?
Slagurinn hélt áfram eftir hádegið.
Hve lengi hélt vopnahléð?
Hauglygin og sóðaleg
Hvernig var bókin?
Ekkert sást nema vindurinn...
Hvernig var útsýnið ofan af þessum háa hest sem þú varst á?
Tólin voru komin í skrúfstykkið og ekkert eftir að gera nema herða.
Hvernig væri hægt að umorða kynlífsfrásögn?
Súkkulaðistrákur
Hvað finnst þér um mig?
Sótsvartur út í gegn.
Hvernig er varaformaður Samfylkingarinnar?
Suður um höfin.
Hvert ferðu til að verzla í matinn?
Svona gelgju-hummus
Hvað fengu kynnarnir þrír að borða fyrir tónlistarverðlaunaafhendinguna í gærkvöldi?
Þú getur snýtt þér uppá það!
Hvernig kemst ég upp á þak?
Jaml og japl og fuður
Hvað rímar og stuðlar við: "Jón er farinn suður"?
Ef þú heldur að það sé vænsti kosturinn.
Á ég að fá mér meira kaffi?
Hermannlegur, kurteis, hvað með það þótt hann sé örlítið veikur á geði, það saknar enginn nokkurra kjúklinga!