Þýðir það að ég verði að koma með eitthvað erfitt?
"Þorirðu að draga andann
dreymir þig um hörmulegan dauðdaga
ég veit þú gerir það
vælirðu, græturðu
syngurðu þig í svefn
þú viðkvæma blóm"
Myndir þú trúa, Nick Cave?
Nei
Ussusussu...veit þetta enginn? Á hvað eruð þið eiginlega að hlusta?
Ég hlusta eingöngu á lélegar upptökur af Kaffibrúsaköllunum. Eingöngu.
-
Og kannast samt ekki við þetta? Nú er ég svo aldeilis hlessa!
Þetta hljómar eitthvað svo Pink Floyd-legt. Er þetta eftir þá?
Platan kom út laust eftir aldamótin síðustu.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við Enter þó! Hvernig!? Spyware? Gúglun? Hugsanalestur?
Sitt lítið af hverju bara.
Sko, ég veit að sumu verður aldrei kippt í liðinn
og breytinga er alltaf þörf hvar sem þú kemur.
En þar til við förum að gera eitthvað í einhverjum af þessum málum
muntu aldrei sjá mig spóka mig um í hvítu!
Well there are things that never will be right, I know
And things need changing everywhere you go;
But until we start to make a move to make a few things right,
You'll never see me wear a suit of white.
Þetta er sumsé næst-síðasta vers ljóðsins "Man in Black" eftir eðalkántrísnillinginn Johnny Cash...bjóst við meiru af þér Enter!
Hvaðahvaða. Hann samdi þetta nú mest sjálfur, ég hjálpaði honum bara með síðustu línuna.
Stare At The Rust That Grows On Me
Eats Itself Into The Shell
I Stand Up I’m Dizzy
I’m Crumbling Away
I Walk Around On My Feet
Walk Past Myself
Clothe Myself Naked
And Then Take It Off
og svo segi ég ekki meir...
Hmmm... klæði mig nakinn... ?
Var það ekki örugglega SigurRós?
...og lagið er þá?
...og lagið er þá?
Voðalega er alltaf verið að heimta lagaheiti á þræði sem heitir "Glefsur úr dægurlagatextum, spurt er um flytjendur".
Þetta þykir mér hið undarlegasta mál.
-
Já, já, ég er voða anal... Sigur Rós er rétt, Hermir á leik. Fer í fýlu