Látum þennan leik verða lygilega vinsælan.
Svona auðvelt í byrjun.
Hvað heitir fyrsti söngvari AC/DC
vísbending : ekki Bon Scott
Angus Young
Var það ekki Dave Evans sem var fyrstur til að þenja raddbönd undir nafni AC/DC?
Yahooba-cola! Nú er ég glaður.
En hvað á ég að gera núna?
Líklega spurja.
Líklega spurja.
Alltaf tekst mér að koma mér í vandræði...
En þar sem það er svo erfitt að finna spurningar sem er ekki hægt að fletta upp á google á 6,31 sek., þá spyr ég eingöngu þá sem vita (eða fatta útfrá leiðandi spurningum).
"Thar'she blows" : Hver er elsti karlakór Íslands?
(p.s. ef þú vilt endilega fá svarréttinn, leitaðu þá bara á google.com... annars tekurðu bara þátt í leiknum og spyrð leiðandi spurninga og reyndir að gera gott úr þessu)
Lögreglukórinn
RokkMúsin kom með þetta, Þrestir eru elsti starfandi karlakór landsins. (Afsakið að "starfandi" gleymdist í spurningunni).
Létt núna, hvaða hljómsveit syngur. . . I would walk 500 miles?
tjah, hljómsveit eða ekki hljómsveit. nokkrir hafa flutt þennan brag, the proclaimers til dæmis