Skál!
Hryllir sig yfir umræðuefninu og gengur í Ásatrúarfélagið með de sammeGemmérblút!
Já Freyr er minn guð. Góð humlauppskera er það sem ég lifi fyrir.
Pantar líterskrús af bjór og einn Gúmoren
ég vil kakó
Fer bak við barinn og kemur til baka með blút handa Galdrameistaranum, líterskrús af bjór og einn Gúmoren handa Hermi, og kakó handa Tigru
Jæja, allir sáttir?
Mér sýnist það bara.
Viltu smíða með mér vélmenni Þarfi?
Já! Það hljómar vel.
Hvernig vélmenni?
Bara svona lítið...
Ekki alveg búin að ákveða hvað það á að gera... framleiða alcohol kannski? Ljómar upp
Já, það er mjög góð þarfagreining:
Vélmennið þarf að geta:
1) Framleitt alkóhól.
Það er aldrei of mikið af alkóhóli í heiminum. Það er líka tiltölulega einfalt að búa það til. Það eina sem við þurfum er kolefni (C), vetni (H) og súrefni (O). Ef við setjum vélmennið í sjálfbært gróðurhús ætti það að geta aflað þessara efna alveg sjálft!
Hoppar af kæti
Svo verður það vitanlega með svona "svissneska vasahnífa" á höndunum... tæki og tól eins og t.d. tappatogara, upptakara og dósaopnara!
Já! Ágætt að gera því kleift að bera fram framleiðsluna líka. Þá getur fólk setið í svona hliðarherbergi við hliðina á gróðurhúsinu, og vélmennið er bara á þönum á milli, hellir í glös, opnar flöskur, tekur glös, styður við fólk sem er að lognast útaf og svona.
Þetta verður ótrúlega skemmtilegt og gagnlegt held ég.
Þá er bara að hanna þetta...
Já, þarfagreiningu er lokið og hönnun er næsta stig.
Tekur upp fartölvu og setur upp AutoCAD. Klórar sér í hausnum
Kannt þú eitthvað á þetta, Tigra?
Æpir upp yfir sig
Nei! Nú þarf ég að strauja vélina og setja upp stýrikerfið aftur.
Vesen er þetta ...
Hengslast inn Yo. Kaffi. Smellir fingrunum valdsmannslega í átt að kaffivélinni