Veitt höfum vér því athygli að séu þræðir færðir milli svæða og skilin eftir 'skyggð' tenging á gamla staðnum lendir sú tenging neðst í lista yfir opna þræði en eigi á sama stað og þráðurinn var á í röðinni fyrir færslu. Veldur þetta því að sá möguleiki að hafa tengingu í þráðinn á gamla staðnum fyrst um sinn er í reynd gagnslaus. Leggjum vér hér með opinberlega til að þetta verði lagað, þetta er mjög nýlegt vandamál því eigi var þetta svona skömmu fyrir áramót.
Jú, þeir lentu þarna aftast blessaðir þegar lokuðu þráðunum var slengt aftur fyrir þá opnu.
Ég skal kippa þessu í liðinn - sem raunar er synd því hér er oft um fyrirtaks laumupúkaþræði að ræða.
laumast
Var þetta ekki komið í lag um daginn ? Núna rétt í þessu veittum vér því nefnilega athygli að þetta er (aftur ?) í ólagi...
Var þetta ekki komið í lag um daginn ? Núna rétt í þessu veittum vér því nefnilega athygli að þetta er (aftur ?) í ólagi...
Úfs. Þetta var ekki komið í lag, ég steingleymdi þessu.