Sælir ritstjórar, (er kvk myndin af ritstjóri, ritstýring? sbr. fjarstýring.)
ég er ánægður með breytingarnar hjá ykkur í ególeitinni og nýjum póstum, ég saknaði þess að sjá ekki hver póstaði síðast og geta ekki farið aftast í nýja þræði á jafn þægilegan máta og á gömlum þráðum, en ég var að velta því fyrir mér hvort það væri ekki lógískara að víxla nafni þráða og nafni spjallsvæða. Hafa semsagt nafn þráðar í dálknum lengst til vinstri og síðu íkonin í kringum nafn þráðarins. Ég skima þetta nefnilega alltaf eftir nafni þráðar og ekki eftir nafni spjallsvæðis, mér finnst þannig nafn spjallsvæðis vera hálfgert aukaatriði og því ólógíst að hafa síðuíkonin í kringum það.
Fórnar pramma af hitabeltisávöxtum til að milda ritstjórn
Ég er ekki viss um að ég hafi skilið hann gvend... hvað var hann eiginlega að meina?
Sammála Ívari, en þorði ekki að upplýsa fávísu mína...
Gvendur var að tala um að hann vildi hafa nafn spjallþráðanna lengst til vinstri í staðinn fyrir nafn umræðanna á 'Hvað er nýtt' síðunni.
Ég sé hins vegar að búið er að breyta þessari síðu á einmitt þann veg, þannig að ég þakka bara fyrir. Þetta er mjög til bóta.
Skál!
Þetta er mjög til bóta. Skál!
Þarfagreinir ber nafn með rentu - þetta var einmitt það sem ég vildi sagt hafa.