Hvernig er það, fóru menn til kirkju á sunnudögum á þessum tíma...bara að spá, gæti hafa verið öðruvísi í denn...
Draumur hans var lygi vegna þess að Fallöxin var ekki brúkuð á sunnudögum.
Gæti verið að fallöxin hafi ekki verið notuð í Frakklandi á þessum tíma heldur hafi þeir tekið þann kost að grilla óþjóðalýðinn.
Þreyttur maður = vinnandi maður = ekki af aðalstignum = ekki hætta á að verða hálshöggvinn
Það er ein mjög rökrétt og einföld lausn á þessu og tveir manns hafa áttað sig á þessu.
Er þá ekki ráð að gefa okkur lausnina og lýsa yfir hver sigurvegarinn er, Guðmundur góði?
En hver veit að honum hafi dreymt fallöxina og dáið útfrá því. Honum hefði allt eins getað verið að dreyma um þrjú fiðrildi yfir blómahafi og hafa fengið heilablóðfall.
Hvaða Frakkafífl á Fallaxaröld veit mun á hjartaáfalli frá heilablóðafalli??
En hver veit að honum hafi dreymt fallöxina og dáið útfrá því. Honum hefði allt eins getað verið að dreyma um þrjú fiðrildi yfir blómahafi og hafa fengið heilablóðfall.
Hvaða Frakkafífl á Fallöxaröld veit mun á hjartaáfalli frá heilablóðafalli??
Ég hugsa að Frelsishetjan sé sigurvegarinn...getur ekki annað verið.
Já sem Friðargæsluliði í þessum flokk Mun þessi ákveðni Guðmundur vera kallaður Gummi Grimmi.
iss piss strákar þetta var lauflétt gáta. Ef Guðmundur góðgrimmi lætur ekki í sér heyra fljótlega skal Nykur ljóstra svarinu.
Jæja Guðmundur lætur ekki sjá sig og ekki hægt að senda ykkur inní jólin með þetta ósvarað: Nykur telur að lausn þrautar liggi í því að hann getur eigi hafa hrotið með höfuðið fram á bringu en höfuðið þyrfti að vera þannig staðsett til að hún næði höggi með regnhlífinni á hnakkann. Semsagt hafi hann hrotið hefur höfuðið hallað afturá bak og því illmögulegt að greiða honum högg á hnakkann. Þetta er þó einungis getgátur Nykurs.
Sælir félagar, sem síðbúna jólagjöf langar mig að benda ykkur á þá staðreynd að okkur er á einhvern hátt kunnugt um hvað manninn var að dreyma - hvurnig má svo vera ef hann á að hafa látist samstundis og höggið reið?
Þannig að ég væri alls ekkert langt frá þessu með mínu svari??
Svarið er mjög einfalt. Ef þið hafið farið í kirkju þá ættuð þið að vita að á kirkjubekkjum er óhemju óþægilegt að sitja. Þeir eru einmitt hannaðir með það í huga að ómögulegt sé að sofna. Sem sagt: maðurinn gat ekki hafa verið sofandi!!!