-Nei, svarthol er samþjappað ekkert, gætt gífurlegu aðdráttarafli.
-Mér vitanlega er hann ekki nefndur í ævisögu Helga Pjéturs.
-Nei, svarthol er samþjappað ekkert, gætt gífurlegu aðdráttarafli.
En þetta ekket sogar til sín allt. Hvernig getur allt orðið ekkert?
Cruel to be kind, kind of thing? En það samt sem áður stríðir gegn ákveðnum lögmálum.
Svona eins og Danskir Hollendingar eru í eðli sínu takmarkaðir!
Þó að uppbygging að heimsfræði Dr. Helga sé unnin að hluta til upp úr Andatrúarbókum, þá er sál eða andi ekki til að mati Dr. Helga. Efnið er hlaðið orku og orkan er háð efni. Hvortveggja háð hvort öðru. Dr. Helgi talar eða skrifar hvergi um sjálfstæða tilveru orku í formi anda eða sálar.
Hann talar mikið um samband lífs í alheimi og eðlissamband lífvera.
Nóg í bili
Ég legg til að þeir, sem vilja tjá sig hér um NÝAL og Dr. Helga Pjeturs, verði skyldaðir til að lesa bækur hans. Ég trúi að hægt sé að nálgast þær á flestum bókasöfnum landsins. Ég vona að Ahraun sé sammála.
Já í guðanna bænum haldið ykkur við Helga Pjeturs í stað þess að hoppa úr einu í annað eins og litlar mykjuflugur með athyglisbrest. Ég nenni ekki að fara að stroka út vitleysuna hérna.
Það hvarflar allt í einu að oss að "nýall" er orðið rangnefni þar eð "all" þessi er eigi nýr lengur og ætti því fremur að nefnast "gamall". Er því e.t.v. kominn tími til að þeir Gestapóar er sérfróðir eru á þessu sviði semji nýjan "al" sem þá getur nefnst "nýall", "nýnýall" eða e.t.v. "aðall" til að tryggja að nafnið verði eigi rangnefni er tímar líða.
Svona eins og Danskir Hollendingar eru í eðli sínu takmarkaðir!
Ert þú þá Danskur Hollendingur?
-Hver fjandinn er Nýall ?
Það gætir óþolinmæði í þessari undarlegu spurningu ef þetta er spurning.
Um Nýal get ég frætt þig ef vilji er fyrir hendi, en ekki í skensi, eins áhugasömum og kurteisum nemenda sem ég álit þig vera. En hvað með þann er þú nefndir á undan Nýal, get ég ekki borið ábyrgð á og verður þú að leita að svörum í hans heimkynnum.
Er Nýall ekki bók eftir Dr. Helga Pjeturs sem fjallar um stjörnulíffræði, þ.e.a.s. eitthvað í þá veruna að við förum til annarra stjarna eftir að núverandi lífi lýkur? Framnýall, Sannýall og eitthvað ámóta hétu þessar bækur held ég.
Þegar sanngjarn og skynsamur einstaklingur kemur fram á sviðið og lætur í sér heyra, verð ég að sýna kurteisi og þakka honum fyrir gáfulegt inlegg. Greinilegt að viðkomandi hefur á einhvern hátt haft fyrir því að kynna sér efnið. Auðveldara verður að svara skynsamlegum athugasemdum, heldur en að svara spurningu sem vegna þekkingarskorts eru út í hött. Ég vil biðja menn að gjalda varhug við spurningum sem eru sprottnar af hugtakinu mér finnst. Hvet ég til þess að okkur, er viljum greina frá því er við vitum um þessi mál verði sýnd kurteisi og velvild eins og þessi herramaður Haraldur Austmann gerir.