...og eitt enn, pólitíkin finnst mér að megi hafa tvennskonar farveg...
1- Innan Baggalútíu og þá í því formi sem það er núna... súrt og skemmtilegt...
2- Innan Efst á baugi og þá venjulegar umræður og þá verða menn að passa sig að fara ekki í persónulegar árásir...
Ekki annars staðar, ekki Félagsrit... það er mín persónulega skoðun...
Geta ekki allir fallist á að gera þetta að lögum á Baggalút
Uhhh, uhh... Teppið er fast í kettinum... prump...
Auðvitað átti þetta að vera typpið... Samanber orðið sperðill séuð þið í vafa.
...og eitt enn, pólitíkin finnst mér að megi hafa tvennskonar farveg...
1- Innan Baggalútíu og þá í því formi sem það er núna... súrt og skemmtilegt...
2- Innan Efst á baugi og þá venjulegar umræður og þá verða menn að passa sig að fara ekki í persónulegar árásir...
Ekki annars staðar, ekki Félagsrit... það er mín persónulega skoðun...
Vér erum í aðalatriðum sammála þessu, varðandi félagsritin má þó nefna að mörkin milli pólitíkur og 'annarra mála' eru stundum óljós.
Þá kann það að rugla einhverja í ríminu að t.d. Kommúnistaflokkur Baggalútíu er verulega líkur 'alvöru' kommúnistaflokki og því geta pistlingar honum tengdir hugsanlega misskilist af þeim er eigi þekkja til. Slíkt myndi hinsvegar varla gerast ef birtur væri pistlingur í nafni Hreintrúarflokksins.
Guð blessi þig Vladimir, guð blessi þig.
Þjóðráð! Ég legg samt til að ganga lengra en það. Af hverju ekki bara að banna allri elítunni að tala um sig sem slíka utan Baggalútíu? Hvað með að banna líka allar sviðsviðslýsingar, laumupúka og áfengi? Síðan mætti leggja niður baunagjafir, setja aldurstakmark á Baggalút og loka á nýskráningar.
Voðalega ertu eitthvað dapur til augnanna Smábaggi minn. Hvað er að vinur?
Ekkert að, vinur! Ég meina þetta í fúlustu alvöru! Hvað með að eyða öllum aðgöngum nema hjá Gimlé-liðinu?
Ég er á móti því að setja boð og bönn en þar sem ég er annálaður fyrir löghlýðni, reyni ég að fylgja þeim. Auk þess eyði ég engu nema alltof grófum innleggjum á Almennu spjalli.
Ég vona að innlegg tengd Kommúnistaflokki Baggalútíu flokkist ekki undir alltof gróf innlegg.
Ekki þá vegna þess að þau eru tengd honum.
Heldurðu að það verði mjög gaman hér þegar allt fyrirfólkið er farið heim til sín í fýlu? HAH ?
Það kemur maður í manns stað... ef mann skyldi kalla.
Já, en það kemur sko engin Krumpa í Krumpu stað! Og enginn aðall í aðals stað.
Ég er bara nokkuð bjartsýnn að þau birtist nú aftur hér á síðum Gestapó og ekki orð um það meir....
Nei, ég held ekki, ég át aðalinn!
Ívar viltu eiga síðasta orðið á þessum þræði? Svaraða þá þessu...
Hvað er það sem herpist saman
heldur fóti niðri gaman
görótt mjög með tylft af truntu
temmilega ofar svuntu
tólgi kastar, klæðir landið
kastast vel í takt við blandið?
Hmm - ég byrjaði og ég skal klára! Þaka hlý orð í minn garð, kæri Ívar. Hættum nú öllu þusi og karpi og vonum að konungshjónin láti sjá sig bráðlega aftur, auðmjúk og auðsveip eftir fríið!
(þá göngum við líka endanlega frá þessum kommagerpum..)