Það mætti bæta við nýliðaábendingarnar að halda skyldi greinarmerkjafjöld í lágmarki. ,,Fleiri upphrópunarmerki en eitt gera ekki neitt" sagði faðir minn alltaf.
Merkilegt að þér finnist það.
Fyrir mér er ! eins og áhersla.
!! eru "Vá".
!!! eru "Þetta er svakalega merkilegt/áhugavert"
Allt yfir !!! er merki um geðveilu á háustigi.
Upphrópunarmerki geta gefið til kynna að um þeim mun hærri upphrópun sé um að ræða.. en það sem ég hinsvegar skil ekki er ógrynningur spurningamerkja.
Spurning verður ekkert meiri spurning þó svo að þú hrúgir heilu þorpunum af spurningjamerkjum aftanvið. Mér finnst spurningin alltaf líta frekjulegri út með "???????????" aftan við og ég kæri mig yfirleitt ekki um að svara svona frekjuköstum.
Sammála því... en við höfum sem betur fer mismunandi stóra stafi ef við viljum hrópa hærra... skilið hehe, segi svona.
Andsk... ég er kominn með lagið Vertu þú sjálfur á heilann...
Það mætti bæta við nýliðaábendingarnar að halda skyldi greinarmerkjafjöld í lágmarki. ,,Fleiri upphrópunarmerki en eitt gera ekki neitt" sagði faðir minn alltaf.
Merkilegt að þér finnist það.
Fyrir mér er ! eins og áhersla.
!! eru "Vá".
!!! eru "Þetta er svakalega merkilegt/áhugavert"
Allt yfir !!! er merki um geðveilu á háustigi.
Ég er sko algerlega ósammála!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Hvað segiru??????????????????????????
Ef þið hættið ekki tafalaust að ofnota greinarmerki millifæri ég milljónir á reikning Enters til að auðvelda honum smíði geinamerkjaeyðingarvélarinnarhikstar
Hver er ég?
Ég styð fullum huga gerð greinarmerkjaeyðingarvélar. Leggur í púkk
Ég sé framtíð þína........
....hugi.is.
Bless.
Aaaaaahhhh!!! Það sker í eyru! Forði sér allir sem geta! hleypur um skelfingu lostinn